Fjárfestingar þrátt fyrir Icesave - auðvitað

Ríkisstjórnin hefur lengi haldið því fram að á meðan Icesaveþrælasamningar séu ófrágengnir verði ekki nein efnahagsuppbygging í landinu, enginn erlendur aðili muni vilja fjárfesta hér og engin erlend lánastofnun muni lána eina evru eða dollar til íslenska ríkisins, ríkisfyrirtækja eða annarra fyrirtækja, innlendra og erlendra, sem hér myndu annars vilja koma af stað nýjum fyrirtækjum.

Þrátt fyrir þessar dómsdagsspár Jóhönnu og Steingríms J. eru áform um álverksmiðjur á Reykjanesi og á Bakka við Húsavík ennþá á fullu skriði, álþynnuverksmiðja er í burðarliðnum og viðræður í gangi um ýmsa fleiri kosti til atvinnuuppbyggingar.  Í dag var svo undirritaður samningur um kísilver, sem reist verður á Reykjanesi og er kostnaður við þá verksmiðjubyggingu áætlaður um 17 milljarðar króna.

Það vekur hins vegar athygli, að eins og fyrr eru það ekki fjárfestar frá ESBlöndum sem áhuga hafa á að fjárfesta hérlendis, heldur annarsstaðar frá og þá t.d. Kína og Bandaríkjunum, eins og reyndin er með kísilverksmiðjuna, en hana reisir og mun reka Íslenska kísilfélagið ehf., sem er í meirihlutaeigu bandaríska fyrirtækisins Globe Speciality Metals.  Ekki verður séð að innlimun landsins í ESB myndi breyta miklu um þessa staðreynd, því Ísland hefur verið aðili að Evrópska efnahagssvæðinu í tuttugu ár án þess að nokkurt fyrirtæki frá Evrópu hafi fjárfest hérlendis, svo nokkru nemi.

Það hefur marg oft komið í ljós að ríkisstjórnin hefur einungis beitt Icesave sem Grýlu á þjóðina í örvæntingarfullri baráttu sinni við að ljúga landinu inn í ESB, en þjóðin hefur fyrir alllöngu séð og skilið að Grýlusagan er bara skáldskapur, eins og flest annað sem frá ríkisstjórninni kemur.

Icesave hefur aldrei verið neinn dragbítur á fjárfestingar erlendra aðila eða lánveitinga til landsins.  Það er ríkistjórnin sjálf sem er það eina sem stendur í veginum fyrir efnahagsuppbyggingunni og minnkun atvinnuleysisins í landinu.

Því fyrr sem hún fer frá, því betra.


mbl.is 17 milljarða fjárfesting
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Allt þetta losnaði úr viðjum, vegna samþykktar þingsins í gær.

Ólafur Sveinsson (IP-tala skráð) 17.2.2011 kl. 14:41

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Ef forsetinn skrifar upp á Icesaveþrælasamninginn líður ekki á löngu uns tilkynnt verður um tugmilljarða lán frá Norræna fjárfestingabankanum til Landsvirkjunar. 

Þá munu bæði Jóhanna og Steingrímur J. koma í fjölmiðlana og slá sér á brjóst og segja eins og þú, að þrælasamningurinn hafi losað þetta allt úr viðjum.  Sannleikurinn er auðvitað sá, að frestun NFB á að afgreiða lánið til Landsvirkjunar hefur verið pólitísk aðgerð og í fullu samráði við íslensku ríkisstjórnina, einmitt til þess að nota í áróðursskyni og þrýstings á Alþingi að samþykkja að selja íslensku þjóðina í skattaþrældóm fyrir Breta og Hollendinga til næstu áratuga.

Það verða örugglega einhverjir til að trúa ósannindavaðlinum í Jóhönnu og Steingrími J., eins og áður.

Axel Jóhann Axelsson, 17.2.2011 kl. 14:57

3 Smámynd: GAZZI11

Þetta snýst allt um það að halda Jóni niðri og láta hann borga og hirða svo af honum allar eignir. Á meðan fær Séra Jón lán og afskriftir.

Stjórnmálamenn og fjársýslumenn lifa bara í allt öðrum heimi en Jón.

GAZZI11, 17.2.2011 kl. 15:03

4 identicon

Þessi samningur var tilbúin fyrir nokkru síðan við Bandaríkjamennina. Ríkisstjórnin ákvað að bíða með undirritunina þar til þetta béaða Icesave væri tekið fyrir og samþykkt líkt og gerðist,(þjóðin mun hafna þeim viðbjóði) þetta var ekkert annað en sýndarleikur hjá Samfylkingunni,að láta sem að þetta hafi gerst eftir samþykktina á þinginu. Hryðjuverkadrottningin hún Jóhanna kann sitt fag,og hennar meðreiðasveinar.

Númi (IP-tala skráð) 17.2.2011 kl. 23:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband