Þingmenn, samviskan og kjósendur

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir í grein á vefsíðu Evrópuvaktarinnar að það séu stórkostleg pólitísk mistök af hálfu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Fjárlaganefnd Alþingis að hafa samþykkt stuðning við Icesave III, með fulltingi formanns og varaformanns flokksins og vafalaust meirihluta þingflokksins.  Styrmir er þar með orðinn einn geysimargra Sjálfstæðismanna sem mótmælt hafa þessari afgreiðslu þingmannanna.

Styrmir segir m.a:  "Þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins, sem vilja styðja hið nýja Icesave-samkomulag eru að sjálfsögðu frjálsir af því. Þeir geta fylgt sannfæringu sinni eftir með því að berjast fyrir því í þjóðaratkvæðagreiðslu að það verði samþykkt. Svo eiga þeir það við flokkssystkini sín og stuðningsmenn, hvort þeir fá áframhaldandi traust til þess að sitja á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins en það er annað mál."

Hægt er að taka undir hvert orð í þessari málsgrein og þá skoðun að málinu hafi verið vísað til þjóðarinnar til afgreiðslu og það eigi að vera hún, sem segi um það síðasta orðið.  Verði samningurinn samþykktur í þjóðaratkvæðagreiðslu er auðvitað ekkert hægt að agnúast út í það, heldur takast á við skattaþrældóminn sem því myndi fylgja, en hafni þjóðin samningnum aftur í slíkri atkvæðagreiðslu, verður að vera hægt að ætlast til að það verði lokaafgreiðsla og ekki verði reynt að þröngva neinum samningi í þessa veru upp á skattgreiðendur í fjórða sinn.

Úrsögn úr Sjálfstæðisflokknum er ekki rétta svarið að sinni til að mótmæla gerðum þingmanna flokksins, heldur bíða og sjá til hver endanleg niðurstaða málsins verður.  Eins og Styrmir bendir á þá verða þeir þingmenn, sem greiða atkvæði með tillögunni að sjá til hvort þeir fá áframhaldandi traust til þess að sitja á Alþingi fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins.

Styrmir bendir líka á, að þingmennirnir gætu hugsanlega bjargað þingsætum sínum með því að leggja sjálfir fram tillögu um að vísa málinu í þjóðaratkvæagreiðslu. 

Það væri betra fyrir þá og kjósendur þeirra, en að treysta á þann umdeilda forseta, Ólaf Ragnar Grímsson.

 


mbl.is Meiriháttar pólitísk mistök
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Það gæti hugsanlega bjargað andliti þeirra að setja það í þjóðarathvæðagr. En þau eru engu að síður búin að minka traust fólks til sín, og er það miður. Þjóðarathvæðagr, væri það eina rétta, og er eins gott að þau fari fram á hana. Þetta er mín skoðun á málinu.

Eyjólfur G Svavarsson, 3.2.2011 kl. 16:27

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Sammála Eyjólfur, þau gætu bjargað andlitinu gagnvart flokksfélögum með því að leggja til þjóðaratkvæði.  Það væri það eina rétta, úr því sem komið er.

Axel Jóhann Axelsson, 3.2.2011 kl. 16:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband