21.10.2010 | 10:11
Már afhjúpar blekkingar ríkisstjórnarinnar
Í stefnuræðu sinni á Alþingi gerði Jóhanna Sigurðardóttir mikið úr þeim árangri sem hún sagði að stjórnin hefði náð í efnahagsmálunum og gerði mikið úr því að hagvöxtur hefði orðið á öðrum ársfjórðungi og fyrirséð að hann yrði mikill á næstu misserum. Undir þetta tók Steingrímur J. og gerði ekki minna úr en Jóhanna og sagði allar hagtölur vísa uppávið og framtíðin væri skínandi björt í fjármálum heimilanna og þjóðarbúskaparins í heild.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, hélt ræðu á fundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins í New York og þar kvað við allt annan tón, samkvæmt viðhangandi frétt, en þar segir: "Engar hagtölur benda til þess að hagvöxtur hafi farið á stað á síðari helming ársins. Þetta kom fram í ræðu Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra, á fundi Íslensk-ameríska verslunarráðsins í New York. Már sagði að vísbendingar væru þó um að viðsnúningur hagkerfisins væri hafin en hinsvegar er hann hvorki kröftugur né mikill."
Steingrímur J. lagði einnig fram fjárlagafrumvarp fyrir árið 2011, sem gerir ráð fyrir 3% hagvexti, sem aðallega byggist á því að ráðist verði í framkvæmdir við álver í Helguvík, sem Steingrímur berst svo gegn af öllum sínum kröftum með dyggum stuðningi ofstækiskonunnar í Umhverfisráðuneytinu og öðrum vinstri grænum.
Már sagði einnig að endurskipulagning skulda heimilanna væri grundvöllur kröftugs hagvaxtar og fjárfestingar. Hvað skyldi ríkisstjórnin hafa afrekað í þeim efnum, ótilneydd, fram að þessu?
Engar beinharðar vísbendingar um hagvöxt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.