Vegir Samfylkingarinnar eru fyrirsjáanlegir

Ásta Sigrún Helgadóttir, sem hefur starfað sem forstöðumaður Ráðgjafarstofu heimilanna í sjö ár, var við nafnabreytingu á stofnuninni ekki talin jafn hæf til að gegna nafnabreyttri stöðu sinni áfram, eins og dyggur, en atvinnulaus Samfylkingarmaður, sem þó hafði enga reynslu af sambærilegu starfi.

Runólfur Ágústsson, sem ráðinn var í starfið hafði hins vegar þá reynslu af fjármálum, að afskrifa hefur þurft hálfan milljarð vegna fyrirtækis, sem hann stofnaði og rak um skeið og á meðan hann var rektor Háskólans á Bifröst fóru fjármál skólans verulega úrskeiðis og þurfti Runólfur að fara úr því starfi vegna þeirra mála og reyndar annarra og persónulegra deilumála.

Enga slíka reynslu hafði Ásta Sigrún, en hafði hins vegar mikla reynslu af vinnu í félagslega kerfinu og eins og áður sagði, gengt þessu starfi um sjö ára skeið, áður en nafni stofnunarinnar og titli forstöðumannsins var breytt, til þess að gefa Árna Páli, félagsmálaráðherra, frjálsari hendur til að skipa "sinn" mann í stöðuna.

Þar sem reynsla beggja af skuldamálum virðist hafa verið talin jafnstæð, hafa jafnréttissjónarmið, sem ríkisstjórnin þykist berjast fyrir, áreiðanlega ráðið úrslitum um ráðininguna, enda sjá allir hvílíkt misrétti felst í því, að láta það viðgangast lengur að kona skuli gegna slíku starfi.

Sumir vegir eru órannsakanlegir, en slíkt verður seint sagt um vegi Samfylkingarinnar.


mbl.is Ætlar að krefjast rökstuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Shit happens to dicked pussy´s

Óskar Guðmundsson, 29.7.2010 kl. 14:11

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þetta mál er mjög afhjúpandi fyrir fúskið sem viðgengst á stjórnarheimilinu. Ég er ennþá að bíða eftir að vera tilkynnt hvort ég fái starfið eða ekki. Frétti reyndar af ráðningu Runólfs í fjölmiðlum eins og aðrir.

Guðmundur Ásgeirsson, 29.7.2010 kl. 14:36

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Guðmundur, manni fyndist nú lágmark að umsækjendum um opinber störf væri sýnd lágmarkskurteisi, en við slíku er auðvitað ekki að búast frá stjórnarherrunum, enda greinilega ekki vanir almennum umgengnissiðum, hvorki innbyrðis né hvað þá gagnvart öðrum.

Axel Jóhann Axelsson, 29.7.2010 kl. 14:56

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þess má geta að hjá Hagstofunni er allt annað uppi á teningnum, þar virðast öll svona formsatriði vera til fyrirmyndar.

Guðmundur Ásgeirsson, 29.7.2010 kl. 16:06

5 identicon

Þetta er þrælflott.Kallin er búin að fá afskrifaðar 500 milur hjá sér og getur aðstoðað restina í því sama.Enn ein snildin hjá ríkinu

Sigurbjörn Kjartansson (IP-tala skráð) 29.7.2010 kl. 17:20

6 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Það má nú ekki gleyma því, að það hafði "mikið" með "hæfni" Runólfs að segja að hann hafði á lausu, nýstofnaða deildarforsetastöðu á Bifröst, þegar rýma þurfti til í þingliði Samfylkingar fyrir ISG.

Kristinn Karl Brynjarsson, 29.7.2010 kl. 17:28

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Fann bréfið með tilkynningu um ráðninguna, það var í póstkassanum sem ég var ekki búinn að athuga í tvo daga. En það er dagsett þremur dögum eftir að þetta hafði verið tilkynnt opinberlega, sem mér þykir ámælisvert.

Guðmundur Ásgeirsson, 30.7.2010 kl. 01:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband