Verða fjármögnunarfyrirtækin lokuð á morgun?

Hæstaréttardómarnir frá því í gær hafa valdið miklu uppnámi hjá bönkunum og þá ekki síður fjármögnunarfyrirtæknunum, sérstaklega þeim sem nánast eingöngu stunduðu lán til bíla- og vélakaupa til einstaklinga og fyrirtækja.

Bíla- og vélalánin voru undantekningarlítið gengistryggð, þ.e. höfuðstóll lánasamninganna var tilgreindur í íslenskum krónum og síðan tengdir við dagsgengi erlendra mynta, sem Hæstiréttur hefur nú kveðið upp úr um að var algerlega ólöglegt, samkvæmt lögum um verðtryggingu fjárskuldbindinga.

Lánafyrirtækjunum til mikils happs er frídagur í dag og enda þótt hátíðarhöld séu um allt land í dag, mun hugur margra fullorðinna a.m.k. vera upptekinn af hugsunum um lánin sín og hvort þau falli undir sömu skilgreiningu og lánin, sem Hæstiréttur dæmdi um í gær.

Ekki kæmi á óvart að fjármögnunarfyrirtækin yrðu lokuð á morgun, vegna "vörutalningar" eða hvers annars, sem þeim dettur í hug að bera fyrir sig, jafnvel bara "vegna veðurs".

Verði þau opin á annað borð munu verða langar biðraðir við dyr þeirra strax við opnun.


mbl.is Lán mögulega áfram verðtryggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband