Jafnréttisstefnan gleymdist

Vinstri grænir hafa haldið því mjög á lofti, að flokkurinn sé hornsteinn jafnréttis í landinu og hans aðall sé að gæta jafnræðis kynjanna til starfa og ábyrgðar.

Fyrir nokkrum dögum skipaði Steingrímur J., fjármálaráðherra, starfshóp með það hlutverk að endurskoða allt skattkerfið og gera tillögur til þeirra breytinga, sem falla að hugmyndum VG um skattpíningu fólks og fyrirtækja.

Nú hefur nefndin verið sett af, vegna þess að jafnréttisást VG var ekki sterkari en svo, að alveg gleymdist að gera ráð fyrir svipuðum fjölda af báðum kynjum, þegar nefndarmenn voru valdir.  Skipan nefndarmanna uppfyllti sem sagt ekki ákvæði jafnréttislaga um jöfn hlutföll kynja í nefndum, ráðum og stjórnum á vegum hins opinbera.

Jafnréttismál VG hafa gleymst, eins og flest önnur, eftir að flokkurinn komst í ríkisstjórn, t.d. eitt það meikilvægasta, sem er afstaðan til ESB. 

Ef til vill verður þetta áfall, vegna nefndarskipunarinnar, til þess að forystumenn VG fari að rifja upp stefnu eigin flokks og vinna að fleiri málum, en skattabrjálæðinu einu saman.


mbl.is Skipar starfshóp að nýju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Maður spyr sig líka hvað Hrannar B. Arnarsson er að gera í þessum hópi, maðurinn er dæmdur skattsvikari ef ég man rétt!  :-(

Matthías (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 14:53

2 identicon

Rétt skal vera rétt.
Ráðherrann hafði aldrei skipað í þennan hóp áður heldur er hann að gera það í fyrsta skipti núna. Það sem mbl.is sagði frá á dögunum voru tilnefningar þeirra sem skipa í hópinn sem fjármálaráðuneytið neitaði að staðfesta vegna þess að þær uppfylltu ekki skilyrði um jafnrétti kynjanna. Í þeim tilnefningum kemur m.a. fram að fjármálaráðuneytið skipaði konu og karl í hópinn en eitthvað var það víst misjafnt frá öðrum aðilum sem skipa í hópinn.

Björn (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 14:55

3 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það var ekki misjafnara en það, að aðeins ein kona var skipuð í upphaflega starfshópinn/nefndina.

Axel Jóhann Axelsson, 23.4.2010 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband