Hvað ætti að valda óróa?

Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, hvetur fólk til að halda ró sinni og stillingu við útkomu skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, en ekkert kemur fram um, hvað ætti að valda einhverri sérstakri ólgu, umfram það, sem verið hefur í samfélaginu vegna bankahrunsins og afleiðinga þess.

Stöðugt hafa verið að síast út fréttir af framferði eigenda bankanna og lánveitingum þeirra til sjálfra sín, sem voru svo geðveikislegar og lítið í ætt við viðskiptavit, að fólk hefur orðið agndofa vegna þeirrar siðblindu þessarar manna sem afhjúpast betur og betur.

Þó fólk sé ekki orðið ónæmt fyrir þessum fréttum, er engin ástæða til að almenningur hafi ekki meiri stjórn á sjálfum sér en svo, að hann fari að æða út á götur og torg með skrílslæti og uppþot, þó út komi skýrsla, sem setur þessar gjörðir allar í samhengi og hverjir séu ábyrgari en aðrir fyrir því hvernig fór.

Aðeins brot almennings hefur það hugarfar, sem þarf til að fremja glæpi eins og þá sem skýrslan mun vafalaust afhjúpa og því ætti að vera lítil hætta á, að fólk flykkist út á götur til að aflífa sökudólgana.

 


mbl.is Fólk haldi ró sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Hilmarsson

 

Þetta verður eins og með "fjallið sem tók jóðsótt" þetta og allt hitt sem átti breyta öllu,

1: Burt með stjórnina (Geirs Haarde) hverju breytti það ?

2: Kosningar ný stjórn, hverju breytti það ?

3: Burt með Davíð úr Seðlabankanum, hverju breytti það ?

4: Klekkja á Bretum vegna hryðjuverkalaga (Indefence) hverju breytti það ?

5: Eva Joly (???) hverju breytti hún ?

6: ORG hafnaði Icesave lögum, hverju breytti það ?

7:Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna Icesave, hverju breytti það ?

8: Og nú skýrslan mikla,  hverju breytti hún ?

9:Allir fundirnir á Austurvelli, hverju breyttu þeir ?

OK sumt af þessu vakti kannski von á erfiðum tímum, en..

Held ekki að mikið gerist nema við útbreidda og almenna hugarfarsbreytingu hjá villuráfandi þjóð sem er búin að vera meira upptekin af Ytri Glæsileika en sterkum og manneskjulegum innviðum, en nú er tækifærið til að taka þessum hugarfarsbreytingum í stað þess að bíða eftir einhverjum "kraftaverkum"

Góðar Stundir

Kristján Hilmarsson, 11.4.2010 kl. 21:26

2 Smámynd: smg

Sammála Kristjáni, óttast ekki að það verði mótmæli eða mótmæli yfir höfuð.

smg, 12.4.2010 kl. 07:18

3 identicon

Brennum bankana.

F.V. (IP-tala skráð) 12.4.2010 kl. 09:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband