Jóhanna og Steingrímur J. eru ótrúleg

Afstaða Jóhönnu og Steingríms J. til þjóðaratkvæðagreiðslunnar um núgildandi Icesavelög, sem fram á að fara á laugardaginn, er gjörsamlega ótrúleg og raunar algerlega óskiljanleg.

Þau leggja alla áherslu á, að láta undan þeirri kröfu kúgaranna, að samþykkja nýjan "Icessavesamning" á næsta sólarhring, eingöngu til þess að geta hætt við þjóðaratkvæðagreiðslu, sem Bretar, Hollendingar og ESB í heild sinni óttast meira en nokkuð annað.

Þessi ótti byggist á því að neitun íslenskra skattgreiðenda við því, að láta neyða sig í skattaþrældóm erlendra kúgunarþjóða vegna ólöglegrar nauðungar á yfirtöku skulda, sem þeim koma ekkert við, þeir hafa ekki gefið umboð til að væri stofnað til og ekki notið neinna hlunninda vegna, heldur þvert á móti þurft að taka á sig atvinnuleysi, skattahækkanir og skert lífskjör vegna óábyrgrar stjórnunar á einkafyrirtækjum.

Ef ríkisstjórninni dytti í hug að fresta þjóðaratkvæðagreiðslunni, eða fella lögin um hana úr gildi, verður að mótmæla slíku með öllum ráðum.

Íslendingar geta skrifað sig á spjöld sögunnar með góðu fordæmi í baráttunni gegn ólögmætum kröfum vegna skulda óreiðumanna og mega ekki láta það tækifæri ganga sér úr greipum.


mbl.is Áfram fundað í Lundúnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: corvus corax

Ef þjóðaratkvæðagreiðslan verður höfð af okkur með ofbeldi ...verður svarað í sömu mynt.

corvus corax, 2.3.2010 kl. 12:34

2 identicon

Ég vil fá að kjósa hvort sem það verði um efnið sem kjósa á um á laugardag eða ef nýr samningur lýtur dagsins ljós.

kidda (IP-tala skráð) 2.3.2010 kl. 12:38

3 Smámynd: Elís Már Kjartansson

Þeim skal ekki verða sú kápan úr klæðinu ef þetta verður stöðvað frestað eða hvað þau vilja kalla þetta. Þá verður mætt öllum slíkum tilburðum af mikilli hörku. ÞAU SKULU EKKI DIRFAST AÐ REYNA AÐ HAFA FULLVELDIS RÉTTINN AF FÓLKINU!.

Elís Már Kjartansson, 2.3.2010 kl. 15:08

4 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Sanniði til, atkvæðagreiðslunni verður fyrst frestað um viku og síðan verður hún blásin endanlega af.  Það virðist vera það skelfilegasta sem allar ríkisstjórnir Evrópu geta hugsað sér, þ.m.t. sú íslenska, að skattgreiðendur í nokkru landi fái að láta álit sitt í ljós á ólöglegum kúgunum, hvort sem það er þessi, eða einhver önnur.

Þeir sem mest prédika um lýðræði, gagnsæi og opna stjórnsýslu, óttast lýðræðið meira en nokkuð annað.

Axel Jóhann Axelsson, 2.3.2010 kl. 15:24

5 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Bravó Axel!

Magnús Óskar Ingvarsson, 2.3.2010 kl. 22:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband