Draumur um að verða (glæpa-) menn með (glæpa-) mönnum

Nokkrir íslenskir smákrimmar hafa lengi unnið að því hörðum höndum, að verða að alvöruglæpamönnum, sem mark yrði tekið á, heima og erlendis.  Þeir þrá það heitast að fá fullgildingu sem fullgildir Vítisenglar, en þau samtök eru hvarvetna í fararbroddi glæpagengja og eru hörð í horn að taka.

Vítisenglar eru þekktir fyrir mikla hörku í bardögum við aðarar ámóta glæpaklíkur eins og Bandidos og fleiri slíkar, sem stunda eiturlyfjasölu, þjófnaði, svik, mansal og annað ámóta uppbyggilegt.

Það er alveg furðulegt, að það skuli vera draumur ungra manna að fá að gerast félagar í svona klúbbum, að því er virðist í þeim eina tilgangi að verða gjaldgengir í alþjóðlegu samstarfi glæpamanna.

Yfirvöld gera það eina rétta með því að berjast af hörku gegn þessum tilburðum smákrimmanna til að breyta mótorhjólaklúbbnum sínum í alþjóðlega glæpaklíku.


mbl.is Norski vítisengillinn hefur komið hingað áður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Helvítis bímer, sonur englanna

Krímer (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 00:59

2 identicon

Sammála þér Axel, það er nóg af glæpamönnum hér fyrir. Það mætti einnig ganga enn lengra gagnvart öðrum erlendum óþjóðalýð sem búa hér og ræna,nauðga og berja fólk og endalaust linkind virðist vera gagnvart. Komum þessum auðnuleysingjum sem fyrst úr landi sem koma hér til lands í þeim eina tilgangi að fremja afbrot. EES varð okkur bara til bölvunar að þessu leyti.

Guðrún (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 10:02

3 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Alveg sammála þessu.  Við eigum að vera miklu harðari í því að halda þessum glæpamönnum í burtu og ég blæs á það að þá sé verið að brjóta einhver lög.

Guðmundur Pétursson, 10.2.2010 kl. 10:41

4 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Sammála ykkur, Guðrún og Guðmundur.  Það vantar hins vegar fangelsi fyrir þennan glæpalýð, bæði þann íslenska og ekki síður þann innflutta.  Það eru u.þ.b. 250 sakamenn á biðlista eftir að hefja afplánun, flestir vegna smábrota, en þó nokkrir með langa dóma.

Þetta er algerlega óviðunandi ástand og fangelsisbygging þyrfti að komast einhvernveginn í framkvæmd, þrátt fyrir blankan ríkissjóð.

Erlendir glæpamenn, sem dæmdir eru í fangelsi hér á landi líta á dvölina á Litla-Hrauni eins og sumarleyfi á lúxushóteli, slíkur er munurinn á aðbúnaði það og í heimalöndum þeirra.

Axel Jóhann Axelsson, 10.2.2010 kl. 11:07

5 identicon

I staðin fyrir að byggja fangelsi á að leyja klefa í viðkomandi landi ef um er að ræða útlending, og svo síðan vísað úr landi ævilangt, þá hætta þeir að koma hingað og þá koma bara þeir sem eru góðir þegnar og hafa þörf fyrir það. Þeir eiga ekki að vera í lúxus á Hrauninu.

Ingolf (IP-tala skráð) 10.2.2010 kl. 11:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband