Þess vegna verður að segja NEI

Steingrímur J., kemur blaðskellandi af ríkisstjórnarfundi og tilkynnir að:  „Það er mat lögfræðinga að það séu vandkvæði á framkvæmd ágústlaganna [fyrri laganna um Icesave] okkar sjálfra vegna, jafnvel þó að Bretar og Hollendingar féllust á allt sem að þeim snýr, einfaldlega vegna þess að það getur verið vandkvæði fyrir tryggingasjóðinn að takast á við skuldbindinguna og það geta verið vandkvæði á því  fyrir fjármálaráðherra að veita ábyrgðina."

Eins og venjulega eru vísurnar hálfkveðnar, því ekkert er útskýrt í hverju þessi vandkvæði eru fólgin og ekki virðist blaðamaðurinn haft rænu á því, að fá nánari skýringar á þessu, en það er frekar regla, en undantekning, að fréttamenn láti mata sig á einhverri dellu og hafi hvorki rænu eða vit, til að krefjast nánari útskýringa.

Hitt er annað mál, að það er einmitt albesta launsin og sú eina rétta, að eldri lögin taki alls ekki gildi, þegar lagabreytingin hefur verið felld í þjóðaratkvæðagreiðslunni.  Bretar og Hollendingar neituðu að samþykkja fyrirvarana við ríkisábyrgðinni og þar með hafa þau lög aldrei tekið gildi og munu ekki taka gildi.

Þar með verður hægt að taka málið upp, algerlega frá byrjunarreit og í þetta sinn með íslensk lög og tilskipanir ESB  í forgrunni.

Verði samið á þeim grundvelli, þá mun ríkissjóður og íslenskir skattgreiðendur ekki þurfa að greiða eina einustu krónu, vegna þessara skulda Landsbankans.


mbl.is Vandkvæði á gildistöku fyrri Icesave-laga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg er þetta lýsandi fyrir vinnubrögð þessarar stjórnar, frá A-Ö! Steingrímur kaus sjálfur með lögunum í ágúst, en núna eru þau ómöguleg. Er semsagt ALLT vanhugsað og illa unnið sem frá þeim kemur... eða er allt öðrum að kenna eins og venjulega?

Ófeigur (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 14:53

2 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Vinnubrögðin í þessu efni eru nákvæmlega eins og í öðrum verkum stjórnarinnar, hörmuleg og auðvitað einhverjum öðrum að kenna. 

Axel Jóhann Axelsson, 15.1.2010 kl. 15:01

3 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Vita greinilega ekkert lengur hvað snýr upp eða niður, eru þau bara ekki alveg að sprynga á þessu limmi...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 15.1.2010 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband