Ekki eftir neinu að bíða

Ef rétt er skilið, virðist endanlega búið að tryggja fjármögnun gagnavers Verne Holdings á Suðurnesjum, með aðkomu góðgerðarsjóðsins Wellcome Trust, sem mun fjármagna fyrsta áfanga versins að öllu leyti.

Þá er ekki eftir neinu að bíða með að Iðnaðarráðuneytið gangi frá fjármögnunarsamningi við félagið, svo framkvæmdir komist á fullan skrið að nýju.  Í því ástandi, sem nú ríkir í atvinnumálum þjóðarinnar, er hver dagur afar dýr, sem svona framkvæmdir dragast.

Eftir að búið verður að koma framkvæmdum við gagnaverið í gang, verður að leggja þunga í að koma af stað virkjunum og vinnu við álverið á Suðurnesjum og svo í beinu framhaldi virkjunum og álveri við Húsavík.

Ef þessar framkvæmdir komast á fullan skrið, myndi það auka bjartsýni manna, á að rofa færi til í atvinnumálum þjóðarinnar.

Það er brýnasta verkefnið, næst á eftir því að fella nauðungarlögin í þjóðaratkvæðagreiðslunni.


mbl.is Góðgerðarsjóður fjármagnar gagnaver
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Engann asa hér -

"Stjórnin" er ekkert á þeim buxunum að byggja eitthvað upp -

Ef menn ætla að fara gegn stefnu "stjórnvalda" og skapa hér atvinnutækifæri ættu þeir að slaka á -

Það er vel hægt að draga þetta í marga mánuði -

ég er hinsvegar sammála póstinum þínum - en því miður ræður þín skynsemi ekki í stjórnarráðinu og ekki heldur í Iðnaðarráðuneytinu.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 15.1.2010 kl. 10:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband