6.5.2010 | 19:48
Fyrsti, annar og.......í varðhaldi?
Dagurinn í dag virðist ætla að vera annadagur hjá Sérstökum saksóknara, en fyrr í dag var óskað eftir gæsluvarðhaldsúrskurði yfir Hreiðari Má, fyrrverandi forstjóra Kaupþings og undir kvöld berast þær fréttir að Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, hafi verið tekinn til skýrslutöku, vegna meintrar þátttöku í ýmsum lögbrotum tengdum Kaupþingi. Miðað við atburðarásina fyrr í dag, má reikna með að Magnús fái svefnpláss við Hverfisgötuna í nótt.
Blaðamaður Moggans náði tali af Ólafi Ólafssyni í Samskipum fyrr í kvöld og kannaðist hann ekkert við þau mál, sem nú væru til rannsóknar, hvernig sem hann hefur talið sig vita hvaða mál það eru, og það eina sem hann hefði verið spurður um fyrir ári síðan væri um hlutabréfakaup Sheiks Al-Thani, en þau hefðu auðvitað verið fullkomlega eðlileg og sheikinn hefði staðfest það sjálfur. Þar með þarf væntanlega ekki að rannsaka þau mál meira, því bæði Ólafur og sheikinn hljóta að segja allt dagsatt um þau viðskipti, sem önnur.
Ekki hefur reyndar frést af einum einasta banka- eða útrásarrugludalli, sem hefur talið sig sekan um nokkurn einasta hlut sem orsakaði bankahrunið og alls ekki átt nema í smávægilegum og stálheiðarlegum viðskiptum við bankana og sjálfa sig og hafi þar að auki gert þjóðinni stórkostlegt gagn með viðskiptum sínum.
Nóg er að lesa kurteisleg og hógvær skrif Jóns Ásgeirs í Bónus og leigupenna hans í blöðunum og á Pressunni til að staðfesta sakleysi þessara manna og sannfærast um ofsóknir Davíðs Oddsonar á hendur þeim, en þrátt fyrir að vera bara Moggaritstjóri, þá stjórnar hann öllu þjóðfélaginu á bak við tjöldin, eins og almenningur veit mætavel.
Sumir halda því reyndar fram að þessir menn séu svo siðblindir og samviskulausir, að þeir sjái ekkert athugavert við eigin athafnir og viðskipti, en það er auðvitað líka rógur og níð, ættað frá Moggaritstjóranum.
Sé það rétt, munu rannsóknir málanna væntanlega ekki taka langan tíma í viðbót og allir sem sökum hafa verið bornir sýknaðir.
![]() |
Annar í skýrslutöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.5.2010 | 17:25
Hvað um Sheik Al-Thani?
Krafist hefur verið gæsluvarðhalds yfir Hreiðari Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings og er hann grunaður um skjalabrot skv. 17. kafla almennra hegningarlaga, auðgunarbrot skv. 26. kafla almennra hegningarlaga, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti þ.m.t. markaðsmisnotkun og loks brot gegn hlutafélagalögum.
Það liggur í hlutarins eðli að við slík brot koma fleiri að málum en forstjórinn einn og því hljóta að fylgja fleiri handtökur í kjölfarið og er nærtækast að minnast þess, að í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis var fjöldi einstaklinga nefndur á nafn, án þess að þeir væru beinlínis ásakaðir þar um lögbrot, en þess getið að mörg mál, sem nefndin komst á snoðir um, hefðu verið send áfram til Sérstaks saksóknara.
Sumir sem við sögu komu í meintum banka- og útrásarglæpum búa erlendis, eða eru erlendir ríkisborgarar og má t.d. nefna Thengisbræður og Sheik Al-Thani, en hann er/var einkavinur og viðskiptafélagi Ólafs Ólafssonar í Samskip.
Sennilega gengi illa að fá sheikinn framseldan til skýrslugjafar og varðhaldssetu.
![]() |
Engin aðkoma alþjóðadeildar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.5.2010 | 15:44
Hreiðar Már í varðhald
Nú virðist vera kominn góður skriður á rannsóknir Sérstaks saksóknara og hefur hann nú óskað eftir að sá fyrsti sem grunaður er um stórfelld lögbrot verði úrskurðaður í gæsluvarðhald, en það mun vera Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings.
Hreiðar er ákærður um skjalabrot skv. 17. kafla almennra hegningarlaga, auðgunarbrot skv. 26. kafla almennra hegningarlaga, brot gegn lögum um verðbréfaviðskipti þ.m.t. markaðsmisnotkun og loks brot gegn hlutafélagalögum.
Hreiðar Már var aðeins einn af mörgum banka- og útrásarugludöllum og því verður að ætla að á næstu dögum fyllist allir gæsluvarðhaldsklefar af hvítflibbamönnum og álag á dómstólana verði sem aldrei fyrr.
Nú rennur upp gósentíð hjá helstu lögfræðistofum landsins, því ekki þarf að efast um að allar helstu lögfræðistofurnar verði ráðnar til að annast vörnina fyrir þessa kappa, enda mun ekki skorta fé til greiðslu þess kostnaðar, sem verjendurnir munu innheimta.
Ýmsir hafa haldið því fram frá hruninu, að yfirvöld myndu ekkert aðhafast í málum gegn þessum görpum, en nú hafa slíkar samsæriskenningar verið afsannaðar, rétt eins og rannsóknarskýrslan sannaði að aldrei stóð til að fela það sem gerðist í aðdraganda hrunsins, eða hylma yfir með neinum.
Tími uppgjörsins er runninn upp.
![]() |
Hreiðar Már handtekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
6.5.2010 | 15:04
Gott framtak Reykjavíkurborgar
Tillaga borgarfulltrúa VG um að fram fari óháð rannsókn á stjórnkerfi og stjórnsýslu Reykjavíkurborgar í ljósi skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis hefur verið samþykkt í borgarráði og er fyrirhugaðri nefnd ætlað að skila niðurstöðum sínum fyrir árslok 2010.
Rannsóknarnefnd Alþingis fór ekkert yfir stjórnsýslu sveitarfélaganna og því er þessi samþykkt borgarráðs til fyrirmyndar og ættu önnur stór sveitarfélög að fylgja þessu fordæmi. Svona athuganir eru nauðsynlegar í ljósi þess andrúmslofts, sem ríkir í þjóðfélaginu og tortryggni í garð alls sem stjórnmálamenn hafa komið nálægt á undanförnum árum.
Ekki þarf að reikna með að neitt óeðlilegt komi í ljós við slíka úttekt, en það er ekki síður nauðsynlegt að fá það þá svart á hvítu frá óháðum aðilum að svo sé og hreinsa með því andrúmsloftið og slá á tortryggnina gagnvart sveitarstjórnarmönnum. Hafi eitthvað verið öðruvísi en það átti að vera, eða einhver borgarfulltrúi eða embættismaður brotið af sér, er auðvitað bráðnauðsynlegt að það komist upp á yfirborðið.
Þessi tillaga Þorleifs Gunnlaugssonar, borgarfulltrúa VG, er afar góð og eftirbreytniverð.
![]() |
Samþykkt að fara yfir stjórnkerfi borgarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.5.2010 | 09:48
Gróf mannréttindabrot í nágrannaríki
Dómstótt í Vilníus, höfuðborg Litháen, kvað upp þann dóm á miðvikudaginn var, að gleðiganga samkynhneigðra, Baltic Pride, skyldi banna vegna þess að hún væri ógn við almannaöryggi.
Norðurlandaráð hefur tekið upp mikið samband við Eystrasaltsríkin, eftir hrun Sovétríkjanna og virðist stefnan vera, að taka þessi lönd að fullu inn í samstarf norðurlandanna í framtíðinni.
Helgi Hjörvar er nú forseti Norðurlandaráðs og hefur gagnrýnt þennan úrskurð dómstólsins, enda er hann algerlega óskiljanlegur og vandséð hvernig slík ganga getur ógnað almannaöryggi.
Norðulönd geta ekki haldið uppi samvinnu við nágrannaríki, sem ekki virða einföldustu mannréttindi og banna útisamkomur einstakra hópa þegnanna, sem haldnar eru í algerlega friðsömum tilgangi og til að undirstrika fjölbreytta flóru mannlífsins.
Íslensk stjórnvöld þurfa að mótmæla öllum slíkum ofsóknum gegn minnihlutahópum í næstu nágrannalöndum.
![]() |
Segir fráleitt að stöðva gleðigöngu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
6.5.2010 | 08:33
Óstjórn lífeyrissjóðanna verður að rannsaka
Stærstu lífeyrissjóðir landsins hafa afskrifað 86 milljarða króna í bókhaldi sínu vegna skuldabréfa sem þeir keyptu af fyrirtækjum og bönkum í "gróðærinu", og ef fer sem horfir eiga þeir eftir að afskrifa 60-70 milljarða í viðbót vegna þessara "viðskipta" sinna, eða eins og segir í fréttinni: "Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), hefur fært slík bréf niður um tæplega 54%, Lífeyrissjóður Verslunarmanna (LV) um 50,4% og Gildi lífeyrissjóður hefur fært um 66% þeirra á afskriftarreikning."
Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur þegar lækkað lífeyrisgreiðslur sínar um 10%, Gildi um 17%, en Lífeyrisstjóður starfsmanna ríkisins getur hins vegar hækkað sínar lífeyrisgreiðslur, því á honum er ríkisábyrgð, þannig að skattgreiðendur taka á sig tap hans. Þannig verða lífeyrisþegar að borga brúsann, bæði með lækkun lífeyris og hækkun skatta, sem ríkisstjórnin hefur verið iðinn við að hækka og hótar frekara skattahækkanabrjálæði um næstu áramót.
Stjórnir og helstu toppar lífeyrissjóðanna sitja sem fastast í stólum sínum og yppa bara öxlum yfir þessu tapi, sem skapast af viðskiptum við örfá krosseignatengd fyrirtæki, sem "fagfjárfestar" hefðu átt að hafa allar upplýsingar um og þá áhættu, sem þessu Matadorspili fyldi.
Rannsóknarnefnd Alþingis hafði ekki tíma til að rannsaka sparisjóðina og lífeyrissjóðina og því hlýtur starfsemi nefndarinnar að verða framlengt, svo komast megi til botns í því hvað réði ferðinni hjá þessum "ábyrgðarmiklu" stjórnendum þessara stofnana, því margt hlýtur að eiga eftir að koma upp á yfirborðið, sem nú er hulið.
Greiðendur þessa taps eiga skýlausan rétt til að fá allar upplýsingar um gerðir þessara trúnaðarmanna sinna innan lífeyrissjóðanna.
![]() |
86 milljarðar afskrifaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)