8.3.2010 | 23:48
Ísland er mikilvægt fyrir ESB, en myndi ekki hafa nein áhrif
Stefán Fúli, stækkunarstjóri ESB hefur áhyggjur af því hve fáir Íslendingar hafa áhuga á að gera landið að áhrifalausum hreppi í stórríki ESB, því yfirráð yfir landinu væri fengur fyrir stórríkið.
Það sem stórríkið sækist helst eftir að ráða eru fiskimiðin í kringum landið og aðgangurinn að norðurhöfum, sem verður afar mikilvægur innan tiltölulega fárra ára.
Það sem Stefáni Fúla, stækkunarstjóra, þótti þó best af öllu og sagði hreinskilnislega, væri að "aðild Íslands myndi ekki hafa mikil áhrif á stefnu sambandsins".
Með þessari yfirlýsingu sinni, rataðist honum algerlega satt orð á munn og þetta er einmitt ástæðan fyrir því að Íslendingar hafa engan áhuga á að verða ríkisborgarar í þessu stórríki skriffinnskunnar.
![]() |
Áhyggjur af áhugaleysi Íslendinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.3.2010 | 21:14
Loksins sýna norðurlöndin sitt rétta andlit
Reinfelt, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur nú lýst því yfir, eins og Noregur og Finnland áður, að lánsloforð þeirra til styrktar efnahagsáætlunar Íslands og AGS sé háð því, að Íslendingar samþykki nánast hvaða þrælasamning, sem Bretar og Hollendingar rétta þeim. Danir hafa ekki sagt neitt, ennþá, en þar sem lánapakkinn átti að vera sameiginlegur, hlýtur afstaða Dana að vera sú sama.
Skýringin, sem gefin er, er alltaf sú, að Íslendingar verði að standa við "alþjóðlegar skuldbindingar" sínar, án þess að útskýra nokkurn tíma hvaða skuldbindingar það séu og ekki hafa fréttamennirnir hugmyndaflug til að spyrja nánar út í það. Einu "alþjóðlegu skuldbindingar" Íslendinga í þessu efni er nákvæmlega sú sama og allra annarra landa innan EES, þ.e. að hafa stofnað tryggingasjóð innistæðueigenda og það var gert með lögum frá Alþingi árið 2000 og voru þau algerlega sniðin eftir tilskipun ESB um það efni.
Allir vita, sem vilja vita, að tilskipun ESB bannar ríkisábyrgð á slíka sjóði, en það er einmitt það sem kúgararnir eru að reyna að neyða upp á íslenska skattgreiðendur, að þeir taki á sig drápsklyfjar vegna vaxtanna einna saman af skuldum tryggingasjóðsins.
Vilji norðurlöndin ekki taka þátt í efnahagsáætlun Íslands og AGS með því að standa við þau lánsloforð sem þau gáfu, þá er ekkert við því að segja, því þeim ber engin skylda til þess, þó leiðinlegt sé fyrir þau að verða ómerkingar orða sinna.
Í ljós er komið, svo ekki verður um villst, að norðulandaþjóðirnar eru bandamenn Breta og Hollendinga í fjárkúgunartilraunum þeirra á hendur Íslendingum og er að öllu leyti gott að fá það upp á yfirborðið.
Íslendingar eigan hinsvegar að bregðast við með því að afþakka þetta "boð" nágrannaþjóðanna og snúa sér annað með lánsbeiðnir sínar, t.d. til Kínverja, sem ekki myndu finna fyrir þessum smáaurum.
![]() |
Sænsk lán háð Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.3.2010 | 16:12
Ekki er endalaust hægt að bæta ónýta flýk
Jóhönnu Sigurðardóttur virðist ganga erfiðlega að skilja, að með úrslitum þjóðaratkvæðagreiðslunnar verður ekki hægt að halda áfram viðræðum við Breta og Hollendinga, eingöngu á þeim nótum að lappa upp á gamla samninginn. Honum var afdráttarlaust hafnað af þjóðinni og hún lætur ekki bjóða sér einhverjar smávægilegar vaxtabreytingar á þeirri skuld, sem skattgreiðendur afsögðu að kæmi sér nokkuð við í kosningunni.
Icesave flík ríkisstjórnarinnar er ónýt og engan veginn hægt að tjasla henni saman aftur með einni eða tveim bótum, þó þær verði klipptar úr samskonar efnisstranga. Þó flíkin sé ríkisstjórninni kær, verður hún að viðurkenna þá staðreynd, að fatnaðurinn er ónýtur og nú verður að finna nýjan. Sá verður að vera bæði vatns- og vindheldur og þeir sem eiga að bera hana á bakinu, sem eru skattgreiðendur, verða að vera sáttir við hann og vilja ganga í honum.
Íslenskir skattgreiðendur hentu af sér búningi galeiðuþræla hinna erlendra þrælahaldara í kosningunum og munu ekki sætta sig við neitt annað en klæðnað frjálsborinna manna framvegis og það verður ríkisstjórnin að hafa að leiðarljósi í framhaldinu, þó henni þyki það sárt, fyrir hönd drottnara sinna í Bretlandi og Hollandi.
Þó ekki hafi verið kosið um líf eða dauða ríkisstjórnarinnar í þessum kosningum, var kosið um lífsafkomu heimilanna í landinu og í samræmi við niðurstöðuna, verður ríkisstjórnin að vinna.
Geri hún það ekki, verður mjög stutt í kosningar, sem alfarið munu snúast um líf ríkisstjórnarinnar.
![]() |
Kosningarnar ljúka ekki málinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2010 | 13:57
Karl Th. bergmálar nýjasta áróður Jóhönnu
Jóhanna Sigurðardóttir er nú byrjuð að reyna að koma því inn hjá þjóðinni, að töfin á því að ná samningum um Icesave hafi nú þegar kostað þjóðina meira en sem næmi hugsanlegum ávinningi af því að ná "betri" samningi um "einhverja lækkun á vaxtagreiðslum" vegna þeirrar einkaskuldar, sem hún vill ólm koma yfir á skattgreiðendur.
Karl Th. Birgisson, ritstjóri Herðubreiðar, bergmálar þennan áróður án þess að skýra hann nokkuð nánar, frekar en Jóhanna sjálf gerir í sínum málflutningi. Í talsvert löngum pistli Karls Th., sem snýst að mestu um skammir á Vinstri græna, laumar hann inn einni málsgrein, sem hljóðar svona:
"Frá og með deginum í dag er það (aftur) forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar að ná viðunandi samningum um IceSave. Töfin hefur þegar kostað okkur tugi milljarða í minni hagvexti, meira atvinnuleysi, hærri vöxtum og engum fjárfestingum, og valdið ómældu tjóni á brothættu sálarlífi þjóðarinnar."
Ekki standast þessar fullyrðingar mikla skoðun, því hagvöxtur jókst nokkuð á fjórða ársfjórðungi síðasta árs, þó nú sé kominn í hann afturkippur, vegna tafa ríkisstjórnarinnar á að afgreiða það, sem að henni snýr, svo hægt sé að hefja uppbyggingu á sviði orkufreks iðnaðar, atvinnuleysi er heldur minna en spáð hafði verið að það yrði um þessar mundir, en þó er spáð miklu atvinnuleysi fram á árið 2012, algerlega óháð Icesave, vaxtaákvarðanir eru teknar af Seðlabankanum og vandséð hvernig þær ákvarðanir tengjast Icesave og fjárfestingar eru litlar, enda hefur ríkisstjónin ekki staðið við eitt eða neitt, sem hún skrifaði undir í stöðugleikasáttmálanum, sem menn eru nú farnir að kalla stöðnunarsáttmála, einmitt vegna svika ríkisstjórnarinnar.
Á þessu sést að engin innistæða er fyrir þeim áróðri, að allt sé hér stopp vegna tafa á Icesave, heldur er sú stöðnun sem nú ríkir, algerlega á ábyrgð ríkisstjórnarinnar vegna aðgerðaleysis hennar.
Allt það rúma ár, sem stjórnin hefur setið, hefur glumið söngurinn um að allt myndi lagast, þegar þetta eða hitt væri frágengið. Það er búið að reka Davíð, það er búið að sækja um aðild að ESB, það er búið að skrifa undir stöðugleikasáttmála og það er búið að endurreisa bankana, að minnsta kosti að nafninu til.
Allt átti að fara að ganga vel í landinu, við hvern einasta af framangreindum áföngum, en aldrei hefur neitt gerst, því alltaf er hægt að nefna eitthvað nýtt, sem tefur.
Nú er það Icesave. Hvað verður það næst?
![]() |
Karl Th.: Töfin hefur þegar kostað tugi milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.3.2010 | 11:44
NEI þýðir NEI og ekkert annað
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn gat varla orðið meira afgerandi, en rúm 98% þeirra, sem atstöðu tóku, svöruðu þeirri spurningu sem fyrir var lögð, með svarinu NEI. Skýrari en það gat niðurstaðan varla orðið og ætti ekki að þurfa að hártoga á nokkurn hátt.
Það þýðir ekkert fyrir Jóhönnu og Steingrím J. að láta bara eins og ekkert hafi í skorist og niðurstaða atkvæðagreiðslunnar skipti engu máli og nú verði haldið áfram þar sem frá var horfið í samningum við fjárkúgarana um vaxtagreiðslur af skuld, sem skattgreiðendum kemur ekkert við.
Skilaboð meirihluta þjóðarinnar verða ekki misskilin og mikil má afneitun þessara fýluráðherra vera, ef þeir ætla að reyna að hunsa vilja skattgreiðenda, varðandi algera höfnun á því að semja um nokkurn skapaðan hlut við ofbeldisseggina.
Einu skilaboðin sem þau skötuhjú geta nú borið hinum erlendu húsbændum sínum eru að þeir skuli snúa sér að lögformlegum aðila með kröfur sínar, en það er Tryggingasjóður innistæðueigenda og fjárfesta, sem er tryggingafélag Landsbankans og á að bæta innistæður upp að 20.887 evrum á hvern innistæðureikning Icesave.
Skattgreiðendur eiga ekki að borga vexti af skuldurm tryggingafélaga eða gjaldþrota einkabanka.
Þá skoðun sína létu kjósendur/skattgreiðendur eftirminnilega í ljós á laugardaginn.
![]() |
Engir fundir boðaðir enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)