12.11.2009 | 14:25
Hafa ekki efni á að taka á glæpum
Eini ráðherrann, sem stendur undir nafni nú um stundir, Ragna Árnadóttir, dómsmálaráðherra, lýsti áhyggjum sínum á Alþingi í dag, yfir stöðu dómsmála í landinu, en ákærum til dómstóla frá ríkissaksóknara hefur fjölgað um 80% á síðustu tveim árum og brátt fara að bætast við mál frá Sérstökum saksóknara.
Á undanförnum misserum hefur æ meira borið á erlendum glæpagengjum, sífellt stærri dópsmygl hafa verið upplýst og nú dreymir íslenska smákrimma um að komast í alvöruglæpahóp Hells Angels. Fangelsin eru yfirfull og um 250 sakfelldir menn og konur þurfa að bíða mánuðum og árum saman, eftir því að vera látin afplána fangelsisrefsingar sínar. Margir síbrotamenn ganga því lausir og stunda iðju sína óáreittir vegna plássleysis í fangelsunum.
Í þessu ljósi, verður það að teljast til tíðinda, að örla skuli á eftirákveiktri skynsemisglætu hjá stjórnarþingmönnum, en í fréttinni kemur fram: " Í umræðunni sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, m.a. að það kunni að hafa verið mistök að gera hagræðingarkröfu til lögreglu, dómstóla og fangelsismála."
Orðanotkun þingmannsinns er auðvitað ekki gáfuleg, þar sem hagræðingarkrafa er alls ekki það sama og fjársvelti dóms- og lögregluembættanna landsins.
Eftir sem áður ber að þakka, að þarna virðist örla á skilningi á málinu, en það er ekki hægt að segja um mörg mál, sem ríkisstjórnarflokkarnir eru með til meðferðar þessar vikurnar.
![]() |
Verður að leysa vanda dómstóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2009 | 09:01
Víti til að varast
Vandamál Dana vegna vopnaðra átaka milli glæpagengja þar í landi, ætti að vera víti til varnaðar fyrir Íslendinga. Hérlendis eru erlendar glæpaklíkur þegar byrjaðar að hreiðra um sig og fyrsti vísirinn að klúbbi Hells Angels hefur litið dagsins ljós og styttist í að hann verði fullgildur klúbbur, með þeim glæpaverkum, sem því fylgja.
Þegar Hells Angels hafa náð að fóta sig hérlendis, mun verða stutt í að til átaka muni koma við aðra glæpahópa um yfirráð fíkniefnamarkaðarins og fleiri kima undirheimanna.
Stjórnvöld verða að grípa í taumana strax og banna starfsemi Hells Angels og annarra skipulagðra og þekktra glæpahópa, ásamt því að beita erlenda glæpahópa hörðu, strax frá byrjun og koma þannig í vex fyrir vöxt þeirra og viðgang hér á landi.
Lögreglunni hefur orðið nokkuð ágengt í þessu efni, en betur má ef duga skal.
Þar sem fangelsin eru yfirfull þarf að vísa þessum glæpalýð beint úr landi, eftir að sök sannast og herða allt eftirlit með að hann komist ekki til baka.
Erfiðara verður að fást við þessar klíkur, eftir að þær byrja að skjóta hverjar á aðra, að ekki sé minnst á saklausa vegfarendur, sem verða svo óheppnir að lenda í skotlínunni.
![]() |
Dönsk stjórnvöld leita ráða hjá þeim bandarísku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)