Jóhanna niðurlægð af Bretum og Hollendingum

Víða um heim er borin virðing fyrir forsætisráðherraembættum annarra landa og þeim sem gegna þeim stöðum er nánast undantekningalaust sýnd fyllsta kurteysi af kollegumnum.  Nú er hins vegar komið í ljós að forsætisráðherrar Bretlands og Hollands bera ekki nokkra virðingu fyrir forsætisráðherra Íslands, heldur þvert á móti niðurlægja þeir hana og lítilvirða á allan mögulegan hátt.

Jóhannna sendi þeim félögum bréf í Ágústmánuði síðastliðnum og fór fram á að fá að hitta þá til viðræðna um skuldir Landsbankans, sem hún var þó búina að samþykkja fyrir sitt leyti að yfirfæra á íslenska skattgreiðendur, að þeim forspurðum.

Forsætisráðherra Hollands lét nægja í svarbréfi, að útskýra fyrir Jóhönnu hvernig viðræður um skuldina hefðu farið fram og gaf þar með í skyn, það sem margan grunar, að honum fyndist sem hún væri alls ekki með á nótunum í þessu stóralvarlega máli.

Næst kom bréf frá forsætisráðherra Bretlands, þar sem hann lýsir yfir sérstakri ánægju sinni með, að íslenska samninganefndin hefði fallist á allar kröfur Breta í seinni umferð samninganna og þar með væru þeir orðnir öryggir gagnvart allri lögsókn af hendi Íslendinga.  Hvorugur forsætisráðherrann kærði sig ekkert um að hitta Jóhönnu, hvað þá að þeir vildu nokkuð við hana ræða.

Svo aum er sú persóna, sem á að heita að vera forystumaður íslensku þjóðarinnar, að hún sendir svarbréf, þar sem hún bendir vinsamlega á, að verið gæti, að Íslendingum bæri alls ekki að greiða þennan reikning, ef dómstólar kæmust að þeirri niðurstöðu.

Endir svarbréfsins var svona samkvæmt fréttinni:  "Í lok bréfs síns segir Jóhanna að ef staða Íslands í málinu myndi skána á einhverjum tímapunkti í framtíðinni, vegna úrskurðar þar til bærs aðila, verði búist við því að Bretar og Hollendingar taki málið þá upp í anda sanngirni og góðvilja."

Er hægt að leggjast lægra í aumingjaskapnum, eftir að hafa orðið fyrir annarri eins niðurlægingu og forsætisráðherrar Breta og Hollendinga sýndu með svarbréfum sínum, ef svör skyldi kalla?


mbl.is Brown álítur Icesave bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að Jóhanna er algörlega vanhæf til að gegna starfi Forsætisráðherra. Það er ekki nóg með að hún er mállaus á erlendar tungur heldur eru heimskupör hennar og undirgefni við Breta og Hollendinga til háborinnar skammar.

Árni Karl Ellertsson (IP-tala skráð) 25.11.2009 kl. 20:33

2 identicon

ALLT FYRIR ESB ÓHROÐANN !

ÍSLANDS VESÆLDÓMI OG ÓSÓMA VERÐUR ALLT TIL FRAMDRÁTTAR MEÐ ÞETTA LANDRÁÐASKASS VIÐ STJÓRNVÖLINN !

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 25.11.2009 kl. 21:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband