Áskriftarugl

Vegna hagræðingar í rekstri Alþingis, hefur verið ákveðið að hætta að greiða fyrir heimsend dagblöð til þingmanna og sama á að gilda um héraðsfréttablöð.  Það eru sjálfsagt ný tíðindi fyrir flesta, að þessar áskriftir skuli yfirleitt hafa verið greiddar fyrir þingmennina.

Hvað um aðrar áskriftir, t.d. nefskattinn til RUV og áskrift að Stöð 2?  Hvaða önnur hlunnindi eru greidd fyrir þingmenn, beint frá Alþingi?  Þingmenn fá ákveðna upphæð mánaðarlega til greiðslu á ýmsum ótilgreindum kostnaði, sem þeir skila ekki reikningum fyrir, svo ætla hefði mátt að alls kyns áskriftir væru innifaldar í þeirri greiðslu.

Skyldu vera fleiri vinnustaðir á vegum ríkisins, þar sem t.d. dagblaðaáskrift er greidd fyrir starfsmenn.

Það eru áreiðanlega margir smáir liðir, sem ríkið getur sparað og sem samtals geta orðið að einni risastórri upphæð.


mbl.is Alþingi hætt að greiða fyrir heimsend dagblöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hjartanlega sammála og gildir engu hvaða miðill á í hlut. Ætli þeir fái ókeypis útvarp og sjónvarp ?

Finnur Bárðarson, 25.9.2009 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband