11.9.2009 | 10:08
Frábær frétt
Nú hefur Norðurál gengið frá samningum við erlenda banka um umsjón með fjármögnun á byggingu álversins í Helguvík. Þetta er stórfrétt, á þessum síðustu og verstu tímum, og nánast sú fyrsta jákvæða, síðan hrunið mikla varð fyrir ellefu mánuðum.
Í stöðugleikasáttmálanum lofaði ríkisstjórnin að flækjast ekki fyrir slíkri uppbyggingu eftir 1. nóvember næstkomandi og er það afar athyglisvert, að aðilar atvinnulífsins skuli þurfa að pína slíkt skriflegt loforð út úr nokkurri ríkisstjórn.
Nú þarf að setja virkjanamál á fulla ferð til þess að anna orkuþörfinni fyrir álverið í Helguvík og síðan þarf að leggja áherslu á að ná samningum um nýtt álver á Bakka við Húsavík. Verður að gera þá lágmarkskröfu til ríkisstjórnarinnar, að hún hætti að flækjast fyrir því máli.
Þjóðin þarf að fá meira af svona fréttum, því ekki munu koma neinar sérstakar gleðifréttir um framkvæmdagleði ríkisstjórninni á næstu mánuðum.
Þaðan munu aðeins berast fréttir af frekari skattpíningu einstaklinga og atvinnulífs.
Samið um fjármögnun álvers í Helguvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll Axel. Mikið rétt, þetta er frábær frétt!
Sigurjón, 11.9.2009 kl. 10:18
Sammála þér Axel loks fer eitthvað á stað þrátt fyrir dugleysi stjórnvalda.
Hilmar Heiðar Eiríksson, 11.9.2009 kl. 10:20
Á ekki eftir að fá rafmagn til að bræða saman duftið? Er landsvirkjun búin að tryggja fjármagn til virkjana? Hvar á að virkja? Þarf ekki að virkja í neðri þjórsá? Hvað með ríkisstjórnarflokkinn VG? Líklega gefa þeir það ekki eftir þó allt annað hafi verið gefið eftir síðustu vikurnar. Er nægur mengunarkvóti til í landinu? Á ekki að láta þessa aðila borga fyrir hann núna þegar við erum að verða uppiskroppa með útblásturskvóta? Frakklandsstjórn var að setja 70 milljarða mengunarskatt í gær.
Svo væri nú alveg til tilbreytingar í lagi að selja raforkuna þannig að eitthvað væri út úr henni að hafa. Virkjanirnar sem er fyrir löngu búið að afskrifa virðast ekki skila neinu.
Kárahnnjúkavirkjun, stærsta framkvæmd Íslandssögunnar er nú ekki meiri fjárfesting en svo að Landsvirkjun er svo gott sem gjaldþrota.
Það er enn mörgum spurningum ósvarað. Gera þetta almennilega í þetta skiptið til tilbreytingar.
joi (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 10:21
Frábærar fréttir og þá ekki sízt fyrir Suðurnesjamenn. Það ríkir breið samstaða á landinu um þessar framkvæmdir og þær sárafáu raddir sem eru á móti eru þvöglumæltar og rökþrota. Virkja þarf neðri Þjórsá ef til vill en það er minni skaði en margan grunar. Frábært að lesa svona jákvæðar fréttir til tilbreytningar og til hamingju með þetta öll saman
Baldur (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 10:39
joi.
Landsvirkjun er ekki gjaldþrota þrátt fyrir að einhverjir flautaþyrlar hafi sagt það til að reyna að koma í veg fyrir að virkjað verði meira í landinu.
Og hvernig getur virkjun eins og Kárahnjúkar ekki skilað neinu af sér þegar greitt er fyrir orkuna þaðan í erlendri mynt? Til fróðleiks fyrir þig, að miðað við núverandi gengi gjaldmiðla, þá verður búið að greiða Kárahnjúkavirkjunina upp á næstu 16 árum, en ekki 40 eins og gert var ráð fyrir í upphafi. Hér er átt við afborganir og vexti. Þetta er haft eftir ekki ómerkari manni en Stefáni Svavarssyni, sem er prófessor í endurskoðun og reikningsskilarétti.
Að loknum þessum 16 árum, þá rennur orkusalan mínus 3% rekstrarkostnaður virkjunarinnar, beint til Landsvirkjunar.
Einar Guðni Þorsteinsson (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 11:08
Einar Guðni, þakka þér þetta góða svar til Jóa. Þú varst á undan mér að svara honum og komst með betri upplýsingar en ég hafði yfir að ráða, þar sem ég hafði ekki séð, eða heyrt, þetta frá Stefáni Svavarssyni, en það er maður sem veit hvað hann segir.
Jói, þú segir líka: "Svo væri nú alveg til tilbreytingar í lagi að selja raforkuna þannig að eitthvað væri út úr henni að hafa. Virkjanirnar sem er fyrir löngu búið að afskrifa virðast ekki skila neinu."
Þetta eru náttúrlega þvílík öfugmæli, því raforkan hefur einmitt verið að skila gulli í kassann, að ekki sé talað um virkjanirnar sem fyrir löngu er búið að afskrifa. Þær skila af sér skýra gulli áratugum saman.
Axel Jóhann Axelsson, 11.9.2009 kl. 11:16
Góð svör Einar og Axel.
Hver hugsandi maður veit það að umhverfisverndarsinnar hagræða sannleikanum i baráttu sinni, enda hafa þeir engin rök gegn þessu. Sammála þér með Álver á Bakka, ömurlegt að sjá skíthátt ríkisstjórnar í því máli. Við þurfum á þeim framkvæmdum að halda!
Baldur (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 11:24
Ótrúlegt að lesa hverju ánægjulegt ykkur, þessum annars frábæru einstaklingum, finnst að grafa eigin gröf.
Álverið í Helguvík er piss í nokkur pör af skóm í mjög stuttan tíma, síðan kemur lyktin og óþverrinn. Álvinnsla þýðir eyðilegging mun stærri tækifæra sem myndu skila margföldum hreinum tekjum í þjóðarbúið.
Gerður Pálma, 11.9.2009 kl. 11:32
Gerður, frábært að fá athugasemd frá þér, þó við séum ekki sammála.
Við erum búin að bíða áratugum saman eftir þessu "öðru", sem á að skila gífurlegum tekjum í þjóðarbúið. Að sjálfsögðu eigum við að fagna öllu "öðru" en álverum líka, um leið og einhver vill setja upp "annað" sem skilar atvinnu og tekjum í þjóðarbúið.
Axel Jóhann Axelsson, 11.9.2009 kl. 11:47
Gerður Pálma,
Gott að heyra hjá þér. Værirðu til í að koma með einhverjar hugmyndir hjá varðandi þetta sem þú nefndir?
Hins vegar verðum við að hafa í huga, að við eigum einungis tvennar náttúruauðlindir; orku og fiskinn í sjónum. Með þessum tveimur náttúruauðlindum, auk þess mannauð sem er hér á landi, er einungis hægt að skapa hér verðmæti.
Sammála Baldri. Ríkisstjórnin hefur viljandi tafið fyrir framkvæmdum á Bakka og það er trú mín að núverandi stjórnvöld hafa engan áhuga á því að byggja þar upp atvinnustarfsemi af neinu tagi, enda eru ekki mörg atkvæði að sækja þangað fyrir stjórnarflokkana.
Einar Guðni Þorsteinsson (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 11:53
Hvar er allur hagnaðurinn af þessum virkjunum sem eru búnar að borga sig upp fyrir löngu? Af hverju er eigið fjár hlutfall Landsvirkjunar komið niður að hættumörkum ef hagnaðurinn af þessum virkjunum er svona rosalegur? Sigalda, Blanda og hvað þessar virkjanir allar heita voru byggðar fyrir tugum ára síðan og ættu fyrir löngu að vera búnar að borga sig upp og þar með að skila hagnað á hagnað ofan í kassann. Ekki er það að sjá á rekstarreikningum Landsvirkjunar að þeir peningar séu að skila sér.
Það talaði enginn um að Landsvirkun væri gjaldþrota, enda er hún með ríkisábyrgð og skuldum yrði að sjálfsögðu velt yfir á almenning í landinu svo hún gæti starfað áfram.
Ef greitt er fyrir orku Kárahnjúkavirkjunar ætti það að hafa gríðarlega jákvæð áhrif á rekstur Landsvirkjunar þar sem gengi erlendra miðla hefur verið í hæstu hæðum síðustu 24 mánuðina.
Tap landsvirkjunar 2008 var 345 milljón bandaríkjadalir. Það eru einhverjir 40 milljarðar. Ekki er nú hægt að segja að tekjur í erlendri mynt séu að skila sér í kassann? Ef tekjur af orkusölu að 16 árum liðnum rennur beint í vasa Landsvirkjunar, mínus 3% rekstrarkostnaðar, þá ætti Landsvirkjun að vera að græða mikla peninga, en ekki tapa þar sem flestar virkjanir eru orðnar meira en 16 ára gamlar. Hvernig stendur þá á öllu þessu tapi.
Hvaða gull er það sem raforkan hefur verið að skila í kassann? Hugsanlega hafa menn verið nokkuð sáttir við að geta skapað atvinnu á sínum tíma þegar álverið í straumsvík var byggt. Í dag eru aðrir tímar. Orka er að verða verðmætari. Orka sem mengar lítið enn verðmætari. Mengunarkvóti gengur á kaupum og sölu á háum fjárhæðum. Ríkið virðist ekkert vera að spá í þessum hlutum.
Ekki er ég alfarið á móti virkjunum. Heldur ekki stóriðju. Menn sem trúa á þetta sem einhverja patent lausn er hins vegar hópur fólks sem lifir í fortíðinni. Það eru aðrir möguleikar. Síðan verða menn líka að skoða hvaða áhrif þessi áliðnaður og virkjanastarfsemi hefur á aðra atvinnustarfsemi í landinu. Hvað ef t.d. ferðaþjónustan hefði fengið þó ekki hefði verið nema brotabrot af því lánsfé með þeim ríkisábyrgðum sem Landsvirkjun hefur fengið til að markaðssetja ísland og byggja upp? Eru ekki líkur á að þá væri enn meiri aukning í straumi ferðamanna til landsins? Það eru margar hliðar á þessu. Svona delar sem eru sífellt með einhverjar upphrópanir, menn eins og Einar Guðni og kverúlantar á hans bylgjulengd hafa ekki mikla vikt í svona umræðum. Þeirra málflutningur er of einhliða.
joi (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 12:42
Jói hvar getur maður nálgast þessa greiningu eftir Stefán Svavarsson.
Svo er hitt ég hélt að lánin til Kárahnjúkavirkjunar væru í erlendri mynt, og ef svo er þá breytast forsendur fyrir uppgreyðslu þessara lána ekkert við gengisfall Íslensku krónunar.
Aftur á móti hefur álverð allt með það að gera.
Með kveðju
Arthur
Arthur Þorsteinsson (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 12:42
Arthur, grein Stefáns Svavarssonar var í Mogganum nú í vor. Þar var ítarleg úttekt á þessu hjá honum.
Einar Guðni Þorsteinsson (IP-tala skráð) 11.9.2009 kl. 14:28
Gerður Pálma, 12.9.2009 kl. 08:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.