Krónan hjálpar - Evran ekki

Seðlabankinn spáir tiltölulega hröðum hagvexti í kjölfar kreppunnar, sem er auðvitað forsenda þess, að landið komist nokkurn tíma upp úr kreppunni.  Ef ekki verður hagvöxtur, verður kreppa áfram.  Það þarf ekki stjarneðlisfræðinga til að sjá það.

Annað sem er athyglisverðara í áliti Friðriks Más Baldurssonar, prófessors í hagfræði og fulltrúa í bankaráði seðlabankans, er það sem hann segir um hvernig krónan sé og verði bjargvættur þjóðarinnar á leið sinni út úr kreppunni.  Hann segir t.d:  "Það væri sérlega athyglisvert að Ísland sé eitt fárra landa í OECD þar sem utanríkisviðskipti draga úr niðursveiflunni. Áhrifin af veiku gengi krónunnar skipti hér mestu. „Samdrátturinn á Írlandi er töluvert miklu snarpari heldur en hér. Þótt mörgum sé illa við krónuna, þá dempar hún niðursveifluna. "

Á Írlandi, sem er með Evruna, er snarpari samdráttur en á Íslandi, sem hefur sína Krónu og varð fyrir algeru bankahruni, sem Írland lenti ekki í.  Að sögn Friðriks er Ísland eitt fárra landa innan OECD, þar sem útflutningur dregur úr niðursveiflunni, einmitt vegna eigin gjaldmiðils Íslands.  Hefðu Íslendingar búið við Evruna við efnahagshrunið, væri ástandið hérna ennþá verra en það er núna, samanber Írland, að ekki sé talað um Lettland, þar sem allt er í rúst vegna tengingar Latsins við Evruna.

Enn og aftur geta Íslendingar þakkað fyrir sinn sjálfstæða gjaldmiðil.


mbl.is Hraður vöxtur eftir kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband