Verðbólga í boði yfirvalda

Hagdeild Landsbankans spáir að vísitala neysluverðs, sem birt verður í næstu viku, muni hækka um 1,2% frá fyrra mánuði.  Ríkisvinnuflokkurinn ber ábyrgð á allri þessari hækkun, eða eins og segir í fréttinni:  "Í Hagsjá bankans segir, að í mælingunni nú megi búast við þó nokkrum verðhækkunum í tengslum við skattahækkanir á áfengi og eldsneyti. Einnig má búast við hækkun á innflutningsvörum s.s. matvöru, húsgögnum o.fl. Aftur á móti gerir spá okkar ráð fyrir hóflegum áhrifum til lækkunar vegna fasteignaliðarins."

Steingrímur Jong Sig., fjármálajarðfræðingur, og hans lið keppist við að útskýra fyrir fólki, að eitt helsta stefnumál ríkisvinnuflokksins og seðlabankans, sé að styrkja gegni krónunnar, en framkvæmdin, eins og í öðrum málum, er auðvitað í þveröfuga átt.  Þannig hækkar innflutningur stöðugt í verði og allt sem vinnur á móti vísitöluhækkunum í kreppunni, er unnið upp og vel það, með aðgerðum og aðgerðaleysi ríkisvinnuflokksins.

Næstu neysluskattahækkun verður ekki framkvæmd fyrr en í næstu viku, til þess að hún mælist ekki í vísitölunni fyrr en í júlímánuði.  Þannig mun ríkisvinnuflokkurinn hækka verðtryggð lán með reglulegu millibili næstu mánuði.

Það er ekki að undra, að almenningur skuli vera búinn að fá upp í kok af vandræðastjórninni.


mbl.is Spá 1,2% hækkun vísitölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband