25.4.2009 | 09:53
Stjórnarkreppa?
Ef fram fer sem horfir, að Smáflokkafylkingin og VG verði álíka stórir flokkar eftir kosningarnar, er að verða útlit fyrir að hér geti orðið langvarandi stjórnarkreppa. Afstaða flokkanna til ESB er svo algerlega ósamrýmanleg, að ef Smáflokkafylkingin ætlar að standa fast á aðildarumsókninni að ESB, er afar ólíklegt að saman náist um slíkt með VG, enda hefur VG verið að herðast í andstöðinni á síðustu dögum kosningabaráttunnar.
VG er farin að sýna klærnar, svo um munar, eftir því sem styrkur þeirra verður stöðugri í skoðanakönnunum. Neitun Ögmundar um staðfestingu þjónustutilskipunar ESB, sýnir að VG er jafnvel tilbúinir til að fórna samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, svo mikil er andstaða þeirra við ESB tengslin, eða eins og segir í fréttinni: "Flokksráð VG hefur lagt til að neitunarvaldi verði beitt í EES til að hindra innleiðingu tilskipunarinnar vegna áhrifa á velferðarþjónustu."
Dettur einhverjum í hug lengur, að VG muni nokkurn tíma, í samstarfi við Smáflokkafylkinguna, samþykkja aðildarumsókn að ESB? Með inngöngu í ESB verður ekkert neitunarvald í höndum VG.
Þeir Sjálfstæðismenn, sem hafa hugsað sér að kjósa Smáflokkafylkinguna, vegna afstöðu hennar til ESB, ættu að hugsa sinn gang vandlega, því með því eru þeir líklega að stuðla að langvarandi stjórnarkreppu, sem er síst það sem þjóðin þarfnast nú um stundir. Auð atkvæði stuðla að því sama.
Það sem getur haft veruleg áhrif á gang mála, þjóðinni til heilla, er að Sjálfstæðisflokkurinn komi sterkur út úr þessum kosningum.
VG stoppaði ESB-lögin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
,,Það sem getur haft veruleg áhrif á gang mála, þjóðinni til heilla, er að Sjálfstæðisflokkurinn komi sterkur út úr þessum kosningum."
Það hefur einmitt verið vandamálið eins og glöggt er nú, við skulum vona að sagan endurtaki sig ekki
Þorsteinn H. (IP-tala skráð) 25.4.2009 kl. 16:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.