20.4.2009 | 14:25
Utanríkismál í hnotskurn?
Íslendingar sátu sem fastast undir ræðu Ahmadinejad Íransforseta á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um kynþáttafordóma. Ekket kemur fram í fréttinni hvort íslenska sendinefndin skildi hvað maðurinn sagði, eða hvort hún hafði einhverja skoðun á málinu. Hins vegar segir í fréttinni:
"Samkvæmt upplýsingum íslenska utanríkisráðuneytisins hafa Íslendingar litið til annarra Norðurlanda í málinu og var í þessu tilfelli ákveðið að fylgja Norðmönnum, sem sátu áfram í salnum, er fulltrúar nokkurra Evrópuþjóða gengu út."
Skyldi þetta sýna íslenska utanríkisstefnu í sínu rétta ljósi? Þurfa íslenskir sendimenn utanríkisráðuneytisins ekki að gera annað en fylgjast með því hvað Norðmenn, eða aðrar norðurlandaþjóðir, gera á svona ráðstefnum? Á ráðstefnunni munu vera þrír fulltrúar Íslands, sem hlýtur að vera bráðnauðsynlegt til að fylgjast með Norðmönnunum, því ekki er víst að þeir láti okkar menn alltaf vita, þegar þeir þurfa að bregða sér frá.
Er þetta ekki endanleg sönnun fyrir því, að hægt sé að nánast leggja utanríkisráðuneytið niður og fela Norðmönnum alfarið okkar utanríkismál?
Ferðakostnaður eftirhermanna myndi a.m.k. sparast.
Íslendingar gengu ekki út | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lélagt af þeim. Með þessu er fulltrúar okkar að samþykkja helförina og mannréttindabrot Íransstjórnar.
Ps. Það voru ekki Bandaríkjamenn eða Ísraelar sem voru að halda ræðu, því annars hefðu okkar fulltrúar gengið út.
Réttlát reiði (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 14:33
segdu....og hver var kostnadurinn vid thessa 3 ,,fulltrua okkar'' ?
SM, 20.4.2009 kl. 14:41
Tek undir þessa færslu.
Nokkrar þjóðir gengu út, en íslenska "nefndin" sat áfram ... vegna þess að norðmenn.. sátu áfram.
Held að við getum bara lagt niður þetta ráðuneyti sem og önnur ... og gengið í Noreg. Miðað við þessa "frammistöðu".
ThoR-E, 20.4.2009 kl. 14:44
Þetta er maðurinn sem lætur hengja konur fyrir hórdóm, drepa homma og lesbíur og kaghýðir fólk á almannafæri sem er að skemmta sér úti á kvöldin.
Svo þykist þessi apaköttur hafa efni á því að senda öðrum tóninn og er algjör rasisti heimafyrir og lætur ofsækja og hundelta fólk af öðrum trúarhópum.. Auk þess sem hann hótar gereyðingu á Ísrael og kallar Bandaríkin Satan hinn mikla.
Skúli Skúlason (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 14:46
Íslenska þjóðin skuldar gyðingum afsökunarbeiðni vegna þáttökunnar í þessari gyðingahatursráðstefnu. Einnig er mikilvægt að ráðamenn þjóðarinnar biðji landsmenn og aðra afsökunar á þessari þáttöku. Nafn Íslands hefur verið smánað í dag.
Hilmar Gunnlaugsson, 20.4.2009 kl. 14:51
Fín færsla!
Kjartan Pétur Sigurðsson, 20.4.2009 kl. 15:26
Góð grein. Getum við ekki bara sparað fullt af peningum og ráðið utanríkisráðuneyti Noregs til að taka ákvarðanir í öllum okkar málum?
Guðmundur St Ragnarsson, 20.4.2009 kl. 17:26
Djöfull er fólk ógeðslega þröngsýnt.
Það er ekki hægt að hrekja rök á grundvelli þess að flytjandi þeirra er slæmur maður. Það er einungis hægt að benda á hræsni hans. En það gerir rökin samt ekki ógild.
Hvað er þetta hefði verið öfugt? Ef að Ísraelsk stjórnvöld hefðu bent á að það hvernig írönsk stjórnvöld kúga konur og minnihlutahópa þar í landi? Hefðu menn þá gengið úr salnum og hefði bloggheimur mótmælt því sem hann sagði?
Nei. Við ættum að fagna því að alræmdur mannréttindabrotamaður stígur upp og gagnrýnir mannréttindabrot annarra, við ættum að nota það gegn honum og afhjúpa hræsni hans en ekki hrekja rökin hans og leyfa á meðan tveim aðillum að traðka á mannréttindum þriðja aðilla.
Rúnar Berg Baugsson (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 19:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.