19.4.2009 | 10:54
Ekki Icesave
Ef rétt er munað var Hertiable Bank, dótturfélag Landsbanka Íslands en ekki útibú. Hertiable Bank var því í raun breskur banki og kemur Icesave reikningum í útibúi Landsbankans í Englandi ekkert við.
Hertiable Bank var yfirtekinn af breska fjármálaeftirlitinu á sama tíma og Frider & Singlander, banki Kaupþings í London. Þetta eru sem sagt bankar sem störfuðu sjálfstætt undir breskum lögum og reglum (sem voru svipaðar þeim íslensku), en voru keyrðir í gjaldþrot með hryðjuverkalögunum.
Uppgjör þessara banka kemur því Icesave reikningunum ekkert við og við Íslendingar verðum að halda áfram baráttunni við að klóra okkur út úr því vandamáli. Vonandi kemur það mikið út úr eignum Landsbankans, að þær dugi að mestu fyrir Icesave, en botn fæst sjálfsagt ekki í það fyrr en að einhverjum árum liðnum.
Aðrar erlendar skuldir íslensku bankanna munu að mestu lenda á erlendum lánadrottnum þeirra, sem auðvitað munu hugsa Íslendingum þegjandi þörfina í framtíðinni, þannig að ekki verður við að búast, að aðgangur íslensku þjóðarinnar að erlendu lánsfé verði mikill á næstu árum.
Íslendingar munu verða að lifa á eigin aflafé um langa framtíð og það verður mikil breyting fyrir þetta þjóðfélag okkar.
Óvænt fé í íslenskum banka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég skil færsluna þína þannig, Axel, að fyrirsögn Morgunblaðsins á fréttinni hafi verið ónákvæm. Heritable Bank hafi í rauninni verið breskur banki, þar sem hann var dótturfyrirtæki Landsbankans, skráð í Bretlandi.
Mjög skiljanlegt að Sunday Times kalli Heritable íslenskan banka, þeir skrifa jú fyrir breska lesendur, en mér er það óskiljanlegt hversvegna Morgunblaðið valdi þessa fyrirsögn fyrir endursögn sína af fréttum Sunday Times um málið.
Agla (IP-tala skráð) 19.4.2009 kl. 13:27
Þessi fyrirsögn Moggans virðist vera dæmigerð fyrir þekkingarleysi margra fréttamanna á þeim málum sem þeir eru að fjalla um. Allan daginn í gær fjölluðu ljósvakafréttastofurnar um þetta mál á sama hátt, þ.e. að hér væri um Icesave að ræða. Það var ekki fyrr en í kvöldfréttum sem vitnað var í Gylfa, viðskiptaráðherra, sem leiðrétti vitleysurnar og sagði þetta ekki koma Icesave við á nokkurn hátt.
Þetta sýnir á skýran hátt hvað fréttaflutningur íslenskra fjölmiðla er oft á tíðum óvandaður.
Axel Jóhann Axelsson, 20.4.2009 kl. 08:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.