Bankahrun í Evrópu

Þýska ríkisstjórnin ætlar að setja lög sem heimila henni að þjóðnýta þýska banka vegna yfirvofandi bankahruns þar í landi.  Skyldu þeir sækja fyrirmyndina til Íslands, sem lenti illa í bankahruni, en brást hratt og skelegglega við, til að bjarga því sem bjargað varð, svo venjuleg bankaviðskipti gætu gengið áfram.

Einnig er að koma í ljós að Evran er veikur gjaldmiðill og hefur hríðfallið undanfarna daga gagnvart dollar.  Ekki eru það gæfulegar fréttir fyrir þá sem ekkert sjá annað en Evruna sem bjargvætt.  Annað sem Evrusinnar og ESB aðdáendur ættu að hugsa um, er hvar er nú Evrópski seðlabankinn, sem menn halda að sé lánveitandi til þrautavara í ESB.  Evrópski seðlabankinn kemur engum til hjálpar, hvorki bönkum né ríkisstjórnum.  Það eru ríkissjóðir viðkomandi ESB landa sem þurfa að taka skellinn alveg eins og íslenski ríkissjóðurinn við íslenska bankahrunið.

Nokkur ESB lönd eru að guggna á Evrunni og munu hugsanlega taka aftur upp sinn gamla gjaldmiðil og ef af því verður mun styttast í að Evrópusambandið fari á límingunni.

Íslendingar ættu að einbeita sér að mikilvægari málum en umsókn um aðild að þessu skrímsli, sem líklega er í dauðateygjunum.

 


mbl.is Ætla að þjóðnýta banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæmundur Ágúst Óskarsson

Þetta segir okkur að fara lafhægt í evrumálin. Evran er og verður kannski ekki sú töfralausn sem sumir halda fram, þó að krónan sé eins og hún er þá eru blikur á lofti í evrulöndunum sem að ég held að við ættum að fylgjast vel með og skoða  framvindu mála.

Sæmundur Ágúst Óskarsson, 18.2.2009 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband