17.2.2018 | 17:13
Lífeyrismálin verður að laga strax
Margir eldri borgarar hafa engar tekjur aðrar en þær sem naumt eru skammtaðar frá Tryggingastofnun ríkisins og enn fleiri hafa lágar lífeyrissjóðstekjur, sem verða svo til þess að smánarupphæðin frá Tryggingastofnun er skert.
Þannig eru tekjurnar frá lífeyrissjóðunum í mörgum tilfellum nánast gerðar upptækar af ríkissjóði og í öllum tilfellum græðir fólk sáralítið á því að greiða til lífeyrissjóðanna alla sína starfsæfi.
Um síðustu áramót var skerðingarmark atvinnutekna hækkað í eitthundrað þúsund á mánuði, þ.e. eldri borgarar fá ekki skerðingu á tekjunum frá Tryggingastofnun vegna fyrstu hundrað þúsund krónua vinnutekna sinna og er það að sjálfsögðu heilmikil réttarbót fyrir þá sem ennþá eru á vinnumarkaði.
Ekki er nema tiltölulega lítill hópur fólks á launum frá Tryggingastofnun eða lífeyrissjóðum á vinnumarkaði og á því eru auðvitað ýmsar skýringar, svo sem heilsuleysi, áhugaleysi vinnuveitenda á því að hafa eldri borgara í vinnu og svo vilja margir njóta elliáranna í rólegheitum með sjálfum sér, maka sínum, ættingjum og vinum.
Næsta skref varðandi greiðslur frá Tryggingastofnun er að sjálfsögðu að hækka allar grunngreiðslur þannig að þeir sem ekki hafa aðrar tekjur geti lifað mannsæmandi lífi og þurfi ekki að neita sér um alla hluti og jafnvel svelta síðustu daga hvers mánaðar.
Samhliða því þarf auðvitað að setja eitthundrað þúsund króna tekjumark, án skerðinga, á allar lífeyristekjur því ekki stenst að gera upp á milli fólks eftir tegund þeirra tekna sem það hefur sér til framfærslu.
Tekjur frá lífeyrissjóðm eiga að vera jafnsettar gagnvart Tryggingastofnun og atvinnutekjur, enda óvíst að annað standist jafnréttisákvæði stjórnarskrár.
Eldri borgarar bíða réttlætis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Kerfi sem heldur fólki í fangelsi fátæktar vegna þess að það er orðið gamalt og/eða vegna veikinda er ekki gott kerfi og á ekki að þekkjast í velferðarþjóðfélagi sem vill teljast í fremsta flokki.
Það er skömm hvernig farið er með örorku- og ellilífeyrisþega. Flestir þessara einstaklinga hafa skilað sínu til þjóðfélagsins og hefur lagt sitt af mörkum til að koma okkur þangað sem við erum stödd í dag. Við eigum þeim mikið að þakka, en ríkisvaldið sendir þeim fingurinn.
Þetta er hræðilega niðrandi fyrir þjóðfélag sem vill teljast í fremsta flokki velferðarþjóðfélaga.
Þakka þér Axel fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli.
Tómas Ibsen Halldórsson, 19.2.2018 kl. 15:36
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.