31.10.2017 | 12:25
Langar og strangar stjórnarmyndunartilraunir framundan?
Miðað við niðurstöður kosninganna og fjölda flokka á Alþingi bendir allt til þess að stjórnarmyndun verði erfið og muni taka talsverðan tíma.
Framsókn hefur lýst því yfir að flokkurinn sé ekki hrifinn af því að fara í hreina vinstri stjórn og jafnvel ekki með því að bæta Viðreisn í hópinn, enda komi ekki til greina að efna til kosninga um aðild að ESB, sem er stærsta baráttumál Viðreisnar og eitt helsta áhugamál Samfylkingarinnar.
Sigurður Ingi hefur lýst því sem sinni von að hægt yrði að mynda þriggja flokka stjórn með VG og sjálfstæðisflokknum, en það mun örugglega ekki takast vegna andstöðu innan VG nema stjórnarkreppa væri búinn að ríkja mánuðum saman.
Líklegasta niðurstaðan verður væntanlega sú að mynduð verði ríkisstjórn Framsóknar, Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Flokks fólksins. Það mun hins vegar varla gagna heldur til að byrja með vegna persónulegrar togstreitu milli Sigurðar Inga og Sigmundar Davíðs, en að lokum yrðu þeir að slíðra sverðin og kyngja persónulegum ágreiningi sínum.
Vonandi tekst að klára þetta púsluspil áður en allt of langt líður og hvernig sem þetta fer verður Alþingi að ganga frá fjárlögum fyrir áramót. Ef ekki verður búið að klára stjórnarmyndun tímanlega, yrði það annað árið í röð sem fjárlög fallinnar ríkisstjórnar yrðu til umfjöllunar og afgreiðslu á þinginu.
Handsprengjan dregur úr líkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Lög um breytingu á lögum til alþingis, nr. 24/2000, með síðari breytingum (viðmiðunardagur umsóknar um kosningarétt).
.........................................................................................................
3.gr.
Lög þessi falla úr gildi 1. Desember 2017.
Fólk verður að lesa sig til um hvernig er verið að misnota þræla og útlendinga á Íslandi. Réttindalaust og mállaust þrælafólk með skráð heimilisfang utan lagamarka og réttlætis á Íslandi!!!
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2017 kl. 18:30
Fólk þarf að fara inn á vef dómsmálaráðuneytisins, og feta sig svo áfram til að finna kosningalögin.
Ég er því miður ekki sú netleiðbeiningar færasta, í að leiðbeina fólki um þann flækjuveg, sem ég hef gengið í gegnum og fundið þetta allt út.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2017 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.