28.9.2016 | 17:49
Mun stjórnarandstaðan fórna hagsmunum stúdenta?
Árum saman hefur verið þvargað um heppilega leið til að finna góða leið til framfærslu stúdenta á námstíma þeirra og að hlutur framfærslunnar yrði í formi námsstyrkja til hliðar við námslánin.
Loksins er komið fram frumvarp sem uppfyllir a.m.k. að hluta til kröfur stúdenta sjálfra um fyrirkomulag námslána og -styrkja, en þá vill ekki betur til en svo að stjórnarandstaðan án þingi virðist ætla að bregða fæti fyrir breytingarnar í pólitískum tilgangi og að því er séð verður eingöngu til þess að stjórnarflokkarnir geti ekki eignað sér þessar langþráðu breytingar.
Helstu stúdentahreyfingar landsins hafa sent frá sér áskorum um að málið verði afgreitt á þeim fáu dögum sem eftir lifa þessa þings og í viðhangandi frétt segir m.a: "Í áskoruninni skora hreyfingarnar sérstaklega á stjórnarandstöðuflokkana á Alþingi og biðla til þeirra að leggja kosningaslaginn til hliðar og hlusta á stúdenta, sem eru langþreyttir á því að vera notaðir í pólitískum leikjum á milli stjórnmálaflokka. Ekki er hægt að horfa fram hjá því að þetta frumvarp er risastórt skref í átt að því námsaðstoðarkerfi sem við viljum sjá á Íslandi í framtíðinni, en það hefur í för með sér þau atriði sem stúdentar hafa lengi barist fyrir, til að mynda fyrirframgreiðslur, beina námsstyrki og 100% framfærslu."
Því verður ekki trúað að stjórnarandstaðan á þingi sé svo illa innrætt að hún geti ekki unað stúdentum þess að kjör þeirra verði stórbætt, jafnvel þó stutt sé í kosningar. Reyndar er ómögulegt að skilja hvernig stjórnarandstaðan heldur að hún geti grætt á því að eyðileggja þetta mál.
Gífurleg kjarabót fyrir stúdenta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jú, þér er alveg óhætt að trúa þessu með "slæmt innræti" stjórnarandstöðunnar. Það þarf ekki annað en að horfa til verka VG og LANDRÁÐAFYLKINGARINNAR á síðasta kjörtímabili og svo verka stjórnarandstöðunnar á þessu kjörtímabili til þess að sannfærast.
Jóhann Elíasson, 29.9.2016 kl. 10:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.