Verður auknum kaupmætti heimilanna mótmælt á Austurvelli?

Undanfarið hefur lítill hópur fólks staðið á Austurvelli og reynt að hrópa niður ríkisstjórnina og gert lítið úr hennar góðu störfum og hafa nokkrir ofstækisfyllstu öfgavinstrisinnar landsins leitt öskrin nánast froðufellandi af ræðupalli hópsins.

Hagdeild ASÍ hefur nú, væntanlega í tilefni af fjöldahátíðarhöldum launafólks, birt hagspá sína og hrakið rækilega helsta slagorð Austurvallahópsins, "vanhæf ríkisstjórn", því í spánni kemur fram að hagdeildin reiknar með kraftmiklum hafgvexti á næstu a.m.k. átta árum og að útlit sé fyrir mesta framfaraskeið í sögu lýðveldisins.

ASÍ segir að kaupmáttaraukning heimilanna hafi verið umtalsverð undanfarin misseri og muni enn aukast á næstu árum og líklega ná hærri hæðum en nokkun tíma fyrr í sögunni.

Ætli þessum stórkostlega árangri ríkisstjórnarinnar í þágu heimilanna í landinu verði mótmælt kröftuglega á Austurvelli á næstunni, eða mun hinn fámenni mótælendahópur skammast sín fyrir ofstopa sinn og öfgar og fara með veggjum á næstunni?

Mikil lifandis ósköp verður að teljast ólíklegt að margt af þessu fólki kunni að skammast sín og því má líklega reikna með áframhaldandi kveðskap öfugmælavísna á vellinum, hópnum sjálfum til skammar og háðungar.

 


mbl.is ASÍ spáir kraftmiklum hagvexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

sæll axel

það er athyglisvert að margir úr þessum hóp kunni ekki að skammast sín né roðna,

ég hef pælt mikið í þessu, því flestar manntegundir hafa þessa eiginleika, 

vita hvenær maður hefur stigið yfir línuna en þessi manntegund forherðist 

í oflátum sínum. 

jón (IP-tala skráð) 2.5.2016 kl. 21:38

2 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Þetta er svo satt!!! Allir sem nú bara þurfa að borga 25% í leigu af þeim aurum sem þeir hafa eftir skatt sem er 140,000,- losna nú við að borga 160,000,- í leigu mánaðarlega samkvæmt þessu, en ég fæ nú ekki dæmið til að ganga upp á sama máta og þessir sem koma með þessi flottu reiknilíkön af þessum stórkostlegu kaupmáttarhækkunum sem nema miljónum á ári. Það er  eitthvað sem ekki stemmir í þessu, en hvað??

Eyjólfur Jónsson, 2.5.2016 kl. 22:29

3 identicon

Miðað við það að olía hefur lækkað um 60% og mörg hundruð prósent fjölgun ferðamanna er að skila okkur tugþúsundum starfa og þriðju hverri krónu í buddunni þá er kaupmáttaraukningin furðu lítil. Ástandi væri sennilega ekkert verra þó stjórnarliðar hefðu lagst á sólbekki með bjór suður á Spáni strax eftir kosningar og væru þar enn.

Jós.T. (IP-tala skráð) 2.5.2016 kl. 23:22

4 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Það er svolítið merkilegt að þegar illa gengur í þjóðfélaginu er það allt ríkisstjórninni að kenna, en þegar vel gengur hefur ríkisstjórnin ekkert með málin að gera.  Þetta er furðulegur tvískinnungur í málflutningi margra.

Varla halda menn að ASÍ sé sérstaklega að birta þessar upplýsingar og spár af einskærri greiðasemi við núverandi stjórnvöld, eins og stjórnmálaskoðunum flestra forystumannanna þar á bæ er háttað.

Axel Jóhann Axelsson, 2.5.2016 kl. 23:56

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Það verður að dæma á þá forhörðu línu og  rangtúlkunina af,síðuhafi góður.

Helga Kristjánsdóttir, 3.5.2016 kl. 04:14

6 Smámynd: Jóhann Elíasson

Gallharðir LANDRÁÐAFYLKINGARMENN eins og Jón Steinsson (Jós T.) eru trúir "Vinstri Hjörðinni" og hver veit nema hann mæti á Austurvöll til að mótmæla auknum kaupmætti, þó það sé langt fyrir hann að fara?

Jóhann Elíasson, 3.5.2016 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband