4.1.2016 | 18:38
Nú verður að gefa Shengen frí
Landamærasamvinnan sem kennd hefur verið við Shengen og var til þess að auðvelda Evrópubúum ferðir á milli landa innan samstarfsins án framvísun vegabréfa er nú að syngja sitt síðasta, án þess að andlátinu hafi verið lýst formlega.
Endalaus flóttamannastraumur frá Sýrlandi, Afganistan, Írak og fleiri stríðshrjáðum ríkjum hefur verið algerlega stjórnlaus fram til þessa og fjöldi flóttamannanna orðinn slíkur að ekkert Evrópuríki treystir sér til þess að taka við nema örlitlum hluta þessa fólksfjölda.
Ekki hefur bætt úr skák að ótrúlegur fjöldi Austur-Evrópubúa hefur blandað sér í hóp þeirra flóttamanna sem raunverulega eru í mikilli neyð og hafa þurft nauðugir að yfirgefa heimili sín og ættjörð í örvæntingu til þess að bjarga lífi sínu og fjölskyldna sinna.
Albanir og aðrir Austur-Evrópubúar eru af öllum Evrópuríkjum sendir nánast umsvifalaust aftur til heimkynna sinna, enda ekki að flýja stríðsátök og hryðjuverk heldur einungis í atvinnuleit og sumir jafnvel til þess að komast á bætur í velferðarkerfum, sérstaklega Norðurlandanna eins og nýleg umfjöllun um Sígaunafjölskyldu í Kaupmannahöfn hefur sýnt og sannað.
Íslendingar verða að bregðast við á sama hátt og önnur Shengen-lönd og harðloka landamærunum sínum og snúa öllum frá landinu sem ekki geta sýnt fram á að verið sé að flýja raunverulega lífshættu og stríðsógnir. Til að minnka útúrsnúning og aulafyndni er rétt að taka fram að alls ekki er með þessu verið að vísa til ferða- og viðskiptafólks sem áfram er meira en velkomið til landsins.
Íslendingar þurfa að sýna skilríki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
alveg innilega sammála þér! Ég held reyndar að þeir sem eru á annari skoðun í dag sé fólk sem lifi í eh útópíu. eða sé hreinlega bara illa gefið
ólafur (IP-tala skráð) 4.1.2016 kl. 19:40
Ísland þarf að segja sig frá "Schengen" samkomulaginu, - svo einfalt er það, - eða er það ekki ?
Ég bara spyr ?
Tryggvi Helgason, 4.1.2016 kl. 20:54
Eins og ástandið er orðið er a.m.k. tímabært fyrir Ísland að lýsa yfir tímabundinni niðurfellingu frelsisins sem aðildin hefur veitt til frjálsra skilríkjalausra ferða Evrópubúa til landsins.
Í framhaldinu yrði svo tekin endanleg ákvörðun um hvort aðild að þessum félagsskap sé landi og þjóð til gagns eða ógagns.
Axel Jóhann Axelsson, 4.1.2016 kl. 22:18
Hér njóta sín einangrunarsinnar og innibyggjar.
Helgi Jónsson (IP-tala skráð) 5.1.2016 kl. 09:18
Helgi, ef þú hefur lausn á þessu vandamáli sem enginn annar í Evrópu býr yfir, þá ættir þú að koma henni á framfæri við ráðamenn álfunnar sem yrðu vafalaust fegnir að fá hjálpina.
Það væri mun snjallara en að ausa bara andlegum saur yfir samborgarana.
Axel Jóhann Axelsson, 5.1.2016 kl. 09:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.