19.11.2014 | 21:59
Þétting byggðar er ágæt, en hvert fer atvinnan?
Undanfarið hafa borgaryfirvöld keppst við að benda á ýmis svæði innan borgarmarkanna, aðallega í eldri hverfum, þar sem áhersla verður lögð á að þétta byggðina. Það verður aðallega gert með byggingu fjölbýlishúsa með afar fáum, jafnvel engum, bílastæðum en áhersla lögð á umferð gangandi, hjólandi og strætisvagna.
Á a.m.k. sumum þessara fyrirhuguðu byggingasvæða, t.d. Skeifunni, Elliðavogi og Ártúnshöfða svo nokkur svæði séu nefnd, eru nú ýmis atvinnufyrirtæki eins og verslanir, verkstæði og ýmis smærri atvinnurekstur og allir skuli þessir vinnustaðir víkja fyrir íbúðabyggingum.
Sá, sem hér slær á lyklaborð, hefur ekki orðið var við að í umræðunni um breytingar á skipulagi og öll þessi nýju byggingarsvæði sé nokkurn tíma rætt um hvert öll þessi atvinnustarfsemi skuli flytjast. Engu er líkara en að fyrirtækin eigi að víkja með nánast engum fyrirvara, t.d. í Elliðavogi, án þess að nokkur minnist á hvert þau ættu að flytja sig.
Smáiðnaður og verkstæði hafa oftast byggst upp í útjaðrði byggðarinnar en nú bregður svo við að ekki virðist vera gert ráð fyrir neinu nýju athafnasvæði í borgarlandinu, enda allt gert sem mögulegt er til að torvelda umferð ökutækja um borgina, þannig að erfitt verður í framtíðinni fyrir starfsmenn og viðskiptavini fyrirtækja að komast á fyrirhugaðan áfangastað.
Getur verið að borgaryfirvöld í Reykjavík ætlist til að atvinnustarfsemi flytjist að mestu leyti í nágrannasveitarfélögin án þess að reiknað sé með að fólk komist á milli staða nema á reiðhjólum?
100 milljarðar í nýtt hverfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:00 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Feb. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | ||||||
2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 |
9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 |
16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 |
23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.2.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Vel spurt, hvar eiga t.d 3000 nýjir íbúar í Skeifunni að fá vinnu? Í Hagkaup?. Þeir komast ekki allir þar inni. Hjóla í Grímsbæ? Hverslags rugl er þetta hjá Hjálmari Sveinssyni og hans liði, óskiljanlegt. Hann mun aldrei þurfa að borga persónulega úr eigin vasa fyrir endsalaust rugl sitt, það verður sett á gjaldendur í Reykjavík. Ég er feginn að búa ekki þar.Svona er pólitík, að láta aðra borga fyrir heimsku sína, samanber það sem er í væntum með lokun flugvallarins og 10-20% hækkun flugfargjalda til Íslands, bara vegna þeirrar ákvörðunar. Reyndar þarf að taka það fram að lokun flugvallarins er að fullu leiti studd af Sjálfstæðisflokknum í borginni, með samþykki fulltrúa flokksins með nýju skipulagi. Það fóru í forustu Friðriksdóttir (Sófussonar) og önnur óreynd ásamt Hönnu Birnu. Það er sama hvað núverandi forystumaður Halldór reynir að gera þegar búið er að höggva fótinn undan einhverjum þá gengur hann haltur það sem eftir er.
Sjálfstæðisflokknum stendur til boða að standa með 80% þjóðarinnar og verja Reykjavíkurflugvöll og þannig ná forystu á nýjan leik í borgarmálefnum. En þorir flokkurinn?????????? Nei, líklega ekki og verður því áfram 20-25% flokkur. Hanna Birna er orðin dýrasta kona sem hefur komist í raðir okkar.
Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 19.11.2014 kl. 22:29
Góð færsla, Axel.
Hörður Þórðarson, 20.11.2014 kl. 17:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.