Skynsamleg samþykkt ESB gegn heimskulegri framleiðslu

Þó hagsmunum Íslands í heild sé betur borgið utan ESB en innan þess er full ástæða til að halda uppi góðu sambandi og viðskiptum við Evrópulöndin, enda er það gert með samningnum um evrópska efnahagssvæðið.

Reglugerðafargan ESB, sem Íslendingar þurfa að taka upp, er gífurlegt og oft hefur Alþingi verið kaþólskara en páfinn, þ.e. þegar reglugerðir hafa verið teknar upp algerlega óbreyttar þrátt fyrir heimildir til þess að laga þær að aðstæðum einstakra landa og nægir þar að benda á reglugerð um raforkudreifingu sem dæmi.

Í viðhangandi frétt er rætt um samþykkt ESB um að takmarka notkun lífræns eldneytis þannig að það fari aldrei yfir 10% af heildarnotkun og að aldrei meira en 6% komi frá landi sem sérstaklega er ræktað til eldneytisframleiðslu úr plöntum.

Það verður að teljast algerlega geggjað að leggja ræktunarland undir eldsneytisframleiðslu á meðan hungur ríkir víða í heiminum og svo langt hefur þessi vitleysa gengið að byrjuð er ræktun lands á Íslandi, því harðbýla landi, til framleiðslu á lífdísel.  

Það hlýtur að teljast toppurinn á þessari vitleysu að ætla að "rækta" eldsneyti, jafnvel á norðurhjara veraldar, á meðan milljónir barna deyja úr hungri á hverju ári. 


mbl.is Takmarka notkun lífræns eldneytis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Sammála þessu.Og í raun held ég að rafmagnið sé að taka yfirhöndina .Fyrir okkur á íslandi(Segi okkur þó ég sé í raun alfarinn af landinu-finnst samt ég eigi eitthvað í því) finnst mér það ekki spurning að nýta rafmagnið .

Jósef Smári Ásmundsson, 15.9.2013 kl. 07:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband