13.11.2012 | 20:57
Ófriðsamlegt friðarviðræðuboð
Nokkrir þingmenn, undir forystu Birgittu Jónsdóttur, hafa flutt þingsályktunartillögu þar sem skorað er á íslensk stjórnvöld að bjóðast til að standa fyrir friðarviðræðum milli Kínverja og Dalai Lama um framtíð tíbetsku þjóðarinnar.
Tillagan gæti verið góð og gild ef ekki væri fyrir ófriðsamlegt orðalag hennar í garð annars deiluaðilans sem boða á til þessara fyrirhuguðu friðarviðræðna. Í fréttinni af tillögunni kemur fram m.a: "Í tillögunni er lagt til að Alþingi álykti að lýsa yfir þungum áhyggjum af vaxandi ofbeldi og kúgun kínverskra yfirvalda gagnvart tíbetsku þjóðinni og hvetji til að endurmenntunarþvingunum verði hætt tafarlaust þar sem þær hafi meðal annars leitt til þess að 63 Tíbetar hafi kveikt í sér í örvæntingu síðan í mars 2011. Létust 53 þeirra ýmist í logunum eða síðar af sárum sínum."
Varla getur þingmönnunum verið full alvara með tilboði um friðarviðræður með fullkomlega réttlætanlegum mótmælum gegn framferði Kínverja í garð Tíbeta og því hefði verið eðlilegra að láta harðorða mótmælasamþykkt Alþingis nægja í þessu efni, enda engar líkur á að Kínverjar samþykki yfirleitt að ræða nokkurn skapaðan hlut varðandi Tíbet og allra síst að þiggja að viðræður færu fram undir stjórn þeirra sem lýst hefðu eindregnum stuðningi við annan deiluaðilann, þó um þann minnimáttar sé að ræða.
Vegna þess tvískinnungs sem þingmennirnir sýna með tillöguflutningnum mun ekkert mark verða tekið á þeim í þessu efni og er þá verr af stað farið en heima setið.
Vilja friðarviðræður um Tíbet í Höfða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 1146725
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Fullkomlega sammála þessu. Framsetning tillögunnar jaðrar við greindarskort....nei annars hún lýsir fullkomnum greindarskorti.
Axel Jóhann Hallgrímsson, 14.11.2012 kl. 00:05
Vonandi finnur Birgitta starf við sitt hæfi eftir kosningar.
Hún lofaði góðu hún Birgitta eftir síðustu kosningar. Skrifaði blogg um störf þingsins og gaf innsýn inn í þingsali. Hm.... Semsagt lofaði góðu. Hafi einhver einstaklingur brugðist mínum vonum í stjórnmálum þæá er það hún. Ég er ekki frá því að Þráinn hafi staðið sig mun betur en hún Ég semsagt vona að hún finni starf einhvers staðar út í heimi sem hennar er þörf það er alla vega ekki á Íslandi.
jóhanna (IP-tala skráð) 14.11.2012 kl. 17:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.