ESB stefnir að eigin endalokum

David Campbell Bennerman, breskur ESBþingmaður, telur að Bretar eigi og muni segja sig úr sambandinu, fyrr eða síðar, enda hafi þeir aldrei samþykkt aðild að pólitísku sambandi, heldur einungis viðskiptabandalagi.

Þróun í átt að stórríki sé í fullum gangi og segir um það m.a:  „Það kom til að mynda fram skýrsla í Evrópuþinginu í síðustu viku sem ég tók þátt í umræðum um þar sem kallað var eftir sameiginlegu skattkerfi, sameiginlegu velferðarkerfi og bótakerfi, sameiginlegu lífeyrissjóðakerfi og jafnvel sameiginlegum lögum um hjónaskilnaði fyrir allt Evrópusambandið. Þetta var samþykkt af þinginu þótt sjálfur hafi ég greitt atkvæði gegn því eins og aðrir í þingflokknum mínum.“

Þrátt fyrir þessa tilburði til stofnunar stórríkis ESB, sem yrði undir stjórn Þjóðverja, telur Bennerman að sambandið muni líklega frekar sundrast en sameinast frekar, enda sé evruvandamálið stærra og meira en svo að við verði ráðið.  Líkir hann þeirri leið sem farin er til "björgunar" evrunni við ástandið eins og það var í Weimarlýðveldinu, en þar endaði peningastefnan með því að fólk þurfti hjólbörufylli af seðlum til að kaupa eitt brauð.  Telur hann að endalaus seðlaprentun til bjargar evrunni muni leiða til hins sama í ESB.

Bennerman er annar ESBþingmaðurinn sem fram kemur á nokkrum dögum og lýsa því sem sínum skoðunum að algjört glapræði yrði fyrir Íslendinga að láta innlima landið í stórríkið væntanlega og slíkt myndi hafa hörmulegar afleiðingar fyrir þjóðina til lengri tíma litið.

Íslendingar ættu að hlusta grannt á þá sem þekkja innviði ESB af eigin reynslu. 


mbl.is Evruvandinn ennþá óleystur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nú vil ég heyra í Sleggjunni og Hvellinum :(

Hafþór (IP-tala skráð) 3.4.2012 kl. 22:39

2 identicon

Þetta er bara rugl og bull, ESB er frábært! Þótt atvinnuleysi þar sé viðvarandi tveggjastafa prósenta og hægt sé að spæla egg á peningaprenturunum þar þá eigum við að fara þangað inn. Það er svo mikið vesen fyrir okkur íslendinga að sjá um okkar mál sjálfir, t.d. er þessi makríl deila voðalega erfið og mikið vesen fyrir okkur. ESB hefði bara ráðstafað makrílnum með einu pennastriki, svo hefði ESB líka séð um kröfur breta og hollendinga í icesave málinu þannig að við hefðum ekki þurft að hlusta svona mikið á það vesen í fjölmiðlum. Svo hefðu erlendir kröfuhafar líka greiðari aðgang að veðum sínum í fyrirtækjum landsins, svo sem í sjávarútvegi. Bara eitt gott samstill veðkall og tangarhald á auðlindum landsins og fjármálakerfinu væri komið undir Deutsche Bank. Já já, ESB er framtíðin.

Sleggjan og Hvellurinn (IP-tala skráð) 4.4.2012 kl. 01:31

3 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Sé að sleggjan og hvellurinn hafa farið í endurmenntun hvað varðar viðtengingarháttinn og þágufallssýkina. Batnandi mönnum er best að lifa.

Jón Steinar Ragnarsson, 4.4.2012 kl. 03:06

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er bara vesen með þetta lýðræði alltaf hreint.  Miklu betra að láta bara kommiserana í Brussel gera þetta fyrir okkur með einu pennastriki.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4.4.2012 kl. 12:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband