3.1.2012 | 10:18
Stjórnmálaflokkar án stefnumála
Lilja Mósesdóttir boðar stofnun nýs stjórnmálaflokks og að með henni vinni fjöldi fólks úr öllum "gömlu" flokkunum og framboðið verði orðið að veruleika fyrir þingkosningarnar 2013. Lilja segir hins vegar að ekki sé farið að vinna að ráði að málefnaskrá flokksins og því ekki ljóst ennþá fyrir hvaða málefnum hann ætli að berjast en þó líklega einna helst að skuldamálum heimilanna.
Guðmundur Steingrímsson og Besti flokkurinn hafa einnig boðað stofnun nýs stjórnmálaflokks og eins og í tilfelli Lilju er allt óákveðið um málefnin sem flokkurinn mun standa fyrir og það eina sem þegar er ákeðið í þeim efnum er að berjast fyrir innlimun Íslands í væntanlegt stórríki ESB.
Áður og fyrrum sameinaðist fólk í stjórnmálaflokkum eftir lífsskoðunum sínum, en nú á tímum virðist vera í tísku að stofna flokka í kringum ákveðna frambjóðendur og ákveða eftirá hvaða málefni eigi að setja á oddinn. Það eru sem sagt ákveðnar persónur sem eru í fyrirrúmi en ekki málefni eða hugsjónir.
Þrátt fyrir þessa áherslu á persónur, en ekki málefni, segjast þessir nýju flokkastofnendur vera á móti "persónudýrkun og foringjaræði" þeirra flokka sem fyrir eru og þeim "klíkum" sem þar ráði ríkjum.
Ráði annað en hugsjónir og málefnaáherslur ríkjum í "gömlu" flokkunum, hvaða hvatir eru það þá aðrar sem ráða stofnun þessara nýju stefnulausu "stjórnmálaflokka"?
Nýtt framboð að verða til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við ættum nú að þakka fyrir að það séu ennþá til einstaklingar eins og Lilja. Hún hefur allt það sem aðra þingmenn skortir í dag: "hún er ærleg, sjálfum sér samkvæm, með ríka réttlætiskend og heiðarleg". Enginn, ég endurtek; ENGINN, þingmaður sem nú situr á hinu lága Alþingi, hvorki í stjórn né stjórnarandstöðu hefur nokkuð af þessu upp á að bjóða kjósendum sínum (eða þeim sem þeir halda að séu "sýnir" kjósendur. Þess vegna held ég að Lilja eigi góða möguleika og óska henni góðs gengis.
Dexter Morgan, 3.1.2012 kl. 12:15
Ekki er ég nú sammála því, að Lilja sé sú eina á þingi sem búin er þessum kostum sem þú nefnir og ekki væri verra að stefnumál væru kynnt áður en val á frambjóðendum er ákveðið. Það á við um alla flokka, nýja og gamla.
Axel Jóhann Axelsson, 3.1.2012 kl. 12:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.