Hreyfingarlaus ríkisstjórn í hrossakaupum

Ríkisstjórninni hefur tekist að halda framförum og efnahagsumbótum nánast algerlega hreyfingarlausum í tæp þrjú ár, enda hefur fylgið hrunið af henni og flokkunum sem hana mynda og sífellt hefur farið fækkandi í stjórnarliðinu á þingi.

Nú er svo komið að hún hefur aðeins eins manns meirihluta í þinginu, þannig að nú eru stunduð hrossakaup um hvert mál sem ríkisstjórnin þarf að fá samþykkt, en þingmenn stjórnarflokkanna stunda grímulaust hagsmuna- og kjördæmapot í skiptum fyrir stuðning við stjórnarfrumvörp.

Ríkisstjórnin þarf og vill losna við Jón Bjarnason úr ríkisstjórn og líklega þarf Samfylkingin að nota Árna Pál Árnason, eða jafnvel Katrínu Júlíusdóttur, sem skiptimynt í þeim viðskiptum.

Með því að reka Jón Bjarnason úr ríkisstjórninni er líklegt að stjórnin missi meirihluta sinn og því hefur staðið yfir mikið baktjaldamakk alla jólahátíðina við Hreyfinguna um að hún styðji ríkisstjórnina, annað hvort með beinni þátttöku í ríkisstjórninni, eða a.m.k. með loforði um að verja hana vantrausti. Að sjálfsöguð verður slíkur stuðningur ekki ókeypis, frekar en annað í lífinu, en verðið fyrir þann stuðning mun ekki verða gefið upp að svo stöddu.

Ríkissjórnin hreyfingarlausa mun á næstu mánuðum slá út hvern einasta hrossaprangara landsins, hvort sem hún mun verða Hreyfingarlaus, eða ekki.


mbl.is Steingrímur vill ekki tjá sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Landið er í pólitískri gíslingu hjá hættulegu fólki. Það lýgur, það svíkur, það hræðir, það blekkir, það stelur og það beitir ýmiskonar ofbeldi. Þetta eru samskonar aðferðir og beitt er í einræðisríkjum. 

Björn (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 01:06

2 Smámynd: Ragnhild H. Jóhannesdóttir

Ekki hreyfir almenningur sig heldur til úrbóta ....bara sitja heima bölvandi  og láta ósómann yfir sig ganga !

Ragnhild H. Jóhannesdóttir, 30.12.2011 kl. 08:20

3 Smámynd: Vilhjálmur Stefánsson

það er rétt sem Björn segir það mjög hættulegt Fólk sem stjórnar Landinu,,Fólk verur að fara að láta í sér heira.Hvar er Stjórnarandstaðan? Hreifingin er hættulegur Flokkur. Framsókn er sofnuð, Sjálfstæðismenn eru í draumaheimi.

Vilhjálmur Stefánsson, 30.12.2011 kl. 16:31

4 identicon

Þetta ástand er sko alveg mátulegt á vitleysingana sem búa þetta sker,,það er alveg sama hvaða helv,vitleysu þessi auma eftirlíking af ríkisstjórn gerir menn í besta falli röfla og skammast í bringuna á sjálfum sér eða blogga um hvað allt sé ömurlegt,en þegar kemur að því að einhverjir reyna að ná þjóðinni saman og mótmæla niðri á austurvelli og reyna að koma þessum fíflum frá sem eru að setja landið á hausinn,,hvað mæta margir??  2-300 í besta falli,,þaö var svo gott í sjónvarpinu,,,,,,I rest my case

casado (IP-tala skráð) 30.12.2011 kl. 20:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband