Árásunum á lífeyrisþega verður að hrinda

Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og tilheyrandi bandormur eru samfelldar árásir á lífeyrisþega, t.d. með þeirri ætlan að svíkja hækkun lífeyris samkvæmt samningi ríkisstjórnarinnar við verkalýðshreyfinguna, ofursköttum á "umframhagnað" lífeyrissjóðanna, sem valda mun lækkun lifeyris, niðurskurði á möguleikum til sparnaðar í séreignarlífeyrissjóðunum um heil 50% o.fl.

Þetta eru því furðulegri árásir á kjör þeirra sem minnst hafa, þar sem ríkisstjórnin hefur kennt sig við "norræna velferð", þó það heiti sé nú orðið hreint öfugmæli og notað sem háðsyrði um ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms J. Engin "norræn velferðarstjórn" myndi kæra sig um að verða líkt við þá íslensku.

Raunveruleikaskin ráðherranna er orðið svo gjörsamlega brenglað og þeir eru svo gjörsamlega úr sambandi við það sem er að gerast í þjóðfélaginu, sem t.d. sannaðist eftirminnilega með ummælum Jóhönnu Sigurðardóttur um að fólksflóttinn úr landinu væri eintóm ímyndun þó annað eins hafi ekki sést síðan á tímum vesturfaranna fyrir rúmum hundrað árum.

Vonandi fær fólkið í landinu fljótlega nýja ríkisstjórn, sem lifir í sama raunveruleika og þjóðin sjálf.


mbl.is Umræður um bandorminn halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Óskarsson

Það er þegar orðið efni í heila bók að taka saman ummæli Jóhönnu Sigurðardóttur sem forsætisráðherra, sem á engan hátt eru ásættanleg komandi frá aðila í þessari valdastöðu.   Hún hefur orðið uppvís að því hvað eftir annað að tala með mikilli lítilsvirðingu niður til fólksins í landinu.   Fólksins sem trúði því og beið ásamt henni eftir því að hennar tími myndi koma.

Hörðustu stuðningsmenn hennar gegnum tíðina hafa látið út úr sér upp á síðkastið setninguna "betur að hennar tími hefði aldrei komið".

Jón Óskarsson, 14.12.2011 kl. 08:38

2 identicon

Kallast þetta ekki helferðarstjórn núorðið?

Þorgils Hlynur Þorbergsson (IP-tala skráð) 15.12.2011 kl. 09:28

3 Smámynd: Jón Óskarsson

Hefur gert frá byrjun Þorgils, okkur bara misheyrðist, það var svo mikið bergmál og slæmur hljóðburður í Norræna húsinu vorið 2009  :)

Jón Óskarsson, 15.12.2011 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband