16.10.2011 | 16:02
ESBinnlimunin kosningamál 2013?
Snatar Samfylkingarinnar í viðræðunum um innlimunarskilmálana fyrir því að Ísland verði gert að útnárahreppi í væntanlegu stórríki ESB segja í viðtali við Evrópsku fréttastofuna að eftirgjöfin í landbúnaðar- og fiskveiðimálum verði sett á dagskrá á miðju næsta ári.
Það er afar athyglisvert að flestar, eða allar, fréttir af gangi þessara mála skuli koma frá erlendum aðilum, annaðhvort kommisörum í Brussel eða fréttamiðlum, því ekki hafa samningasnatarnir og hvað þá húsbændur þeirra í Samfylkingunni látið svo lítið að upplýsa almenning á Íslandi um þær kröfur, ef einhverjar eru, sem settar eru fram af Íslands háflu í þessu innlimunarferli.
Ekki er ósennilegt að þetta upplýsingaleysi stafi af því að engar slíkar kröfur hafi verið mótaðar, enda er það ESB sem setur skilmálana en ekki þau ríki sem óska eftir beinni stjórnun Þýskalands og Frakklands á málefnum sínum og framtíð.
Veturinn 2012-2013 verður "kosningavetur" og þá er viðbúið að flest mál verði í "frosti", en tíminn innan og utan Alþingis fari í karp og málalengingar um alls kyns pólitísk efni, að ekki sé talað um atvinnumál og erfiðleika heimilanna, sem allt bendir til að verði þá ennþá óleyst, enda sýnir ríkisstjórnin hvorki vilja né getu til að leysa úr þeim málum.
Því miður er stórhætta á, að nauðsynjamálin verði látin sitja á hakanum fyrir tilgangslausu orðaskaki um innlimun í ESB eða áframhaldandi fullveldi Íslands.
Allir kaflar opnaðir um mitt ár 2012 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 1146437
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Íslendska þjóðin hefur aldrei samþykkt að fara í einhverjar "aðildarviðræður" við ESB.
Ísland mun aldrei ganga inn í ESB, - að mínu mati, - aldrei að eilífu. Ég krefst þess að öllum peningaútgjöldum í sambandi við inngöngu í þetta ESB, - "verði tafarlaust hætt". TH.
Tryggvi Helgason, 16.10.2011 kl. 20:41
Tek heilshugar undir allt sem þú segir um þetta ESBóráð, Tryggvi.
Axel Jóhann Axelsson, 16.10.2011 kl. 20:44
Sammála ykkur ég á ekki til aukatekið orð yfir yfirlýsingum Össurar og "loforða" um að það styttist í að við komumst inn í sæluríkið. Er maðurinn gjörsamlega ólæs á þjóðarvilja?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.10.2011 kl. 12:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.