27.3.2010 | 19:06
Of mikið mál fyrir Árna Pál
Árni Páll, félagsmálaráðherra, hefur á undanförnum mánuðum annaðhvort boðað að ekkert sé hægt að gera varðandi skuldaniðurfellingar, eða hann hefur ruðst fram á völlinn með lausnir á öllum málum og þá boðað að málin verði "leyst" á allra næstu dögum, aðeins ætti eftir að "útfæra" lausnirnar nánar.
Aldrei hefur komið útfærsla á nokkrum boðuðum aðgerðum Árna Páls, en að hæfilegum tíma liðnum birtist hann á ný í fjölmiðlum með nýjar lausnir, sem aðeins eigi eftir að "útfæra" nánar. Fyrir stuttu boðaði hann að erlend bílalán yrðu færð niður í 110% af matsverði bifreiðar og myndi hann leggja fram lagafrumvarp þar að lútandi, þegar búið yrði að "útfæra" lausnina.
Ekkert hefur gerst í þessum bílalánamálum fyrr en í dag, að Árni Páll birtist á ný í fjölmiðlum og boðar að erlend bílalán verði "færð nær raunverði bifreiða" og þeim breytt í verðtryggð lán í íslenskum krónum með 15% okurvöxtum. Verði fjármögnunarfyrirtækin með eitthvert múður vegna þessarar "útfærslu", þá muni hann bara flytja lagafrumvarp um málið innan skamms.
Svona hafa öll mál verið hjá þessum lán-, getu- og hugmyndalausa ráðherra og svo verður vafalaust áfram, næstu vikur og mánuði.
Frægt varð um árið þegar Jón Páll, kraftakarl, sagði þegar hann setti enn eitt metið í kraftakeppni: "Þetta er ekkert mál fyrir Jón Pál."
Núna á betur við að segja: "Þetta er alltof mikið mál fyrir Árna Pál".
Rætt um að breyta erlendum bílalánum í innlend | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þessi "lausn" (eða mjög svipuð) er þegar í boði hjá þessum fyrirtækjum, en mjög fáir hafa viljað skrifa undir þetta! Á að troða þessu upp á menn eins og greiðsujöfnunina?
Þórdís (IP-tala skráð) 27.3.2010 kl. 19:19
Það er nefninlega máið, að allar "lausnir" Árna Páls hafa annaðhvort þegar verið auglýstar af fjármögnunarfyrirtækjunum sem fáir hafa þegið, eða þetta eru "lausnir" sem skapa nýjan vanda, eins og skattarnir af niðurfellingunum munu gera.
Axel Jóhann Axelsson, 27.3.2010 kl. 19:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.