Hvað gengur manninum til?

Ekki liggur alveg ljóst fyrir hvað fær utanríkisráðherra Lettlands til að tjá sig um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, nánast eingöngu á þeim nótum, að hún eigi ekki að hafa áhrif á umsókn Íslands um að fá að verða hreppur í stórríki ESB. 

Það er alger óþarfi af manninum að vera að blanda þessari atkvæðagreiðslu við þau hörmulegu mistök, sem umsóknin er, en nú hafa allir Íslendingar fundið á eigin baki, hvernig innræti og framkoma forystumanna ESB er í garð smáþjóða, sem þau telja að liggi vel við höggi.

Þegar Samfylkingin verður búin að eyða bæði dýrmætum tíma og miklum peningum í að berja saman einhvern samning við þetta fantabandalag, þá mun honum verða vísað til þjóðarinnar, sem mun vafalítið fella hann, með jafnvel meira afgerandi hætti en Icesavelögin.

Sennileg eru þessi ummæli utanríkisráðherrans einmitt tákn um það, að fantarnir innan ESB sjá nú hvernig samstaða Íslendinga kemur í ljós við afgreiðslu örlagaríkra mála, ekki síst yfirgang og fjárkúgunartilraunir erlendra fúlmenna.


mbl.is Niðurstaðan hafi engin áhrif á ESB-umsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll Axel Jóhann; æfinlega !

Þarna; vil ég leyfa mér, að taka undir hvert orða - þíns kjarnyrta texta, ágæti drengur.

Vel mælt; í hvívetna.

Með beztu kveðjum; úr Árnesþingi /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 7.3.2010 kl. 22:09

2 Smámynd: Ingvi Rúnar Einarsson

Steingrímur og Jóhanna varpa því stöðugt fram í fjölmiðlun,að það sé eftirsjá í þær 400 milljónir,sem er kostnaður við atkvæðagreiðsluna.Þau fá stóran hlut af því tilbaka í vegna skatta á starfsfólki atkvæðisgreiðslunnar.-En þau minnast ekki á þá milljarða,sem þarf að greiða,vegna umsóknar um aðild að ESB.-Umsóknar sem er ekki marktæk vegna þess að meiri hluti þjóðarinnar hefur engan áhuga að fara þangað inn.

Ingvi Rúnar Einarsson, 8.3.2010 kl. 01:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband