Tyrkir fara illa með þá sem ættu að vera trausts verðir

Tyrkneskt réttarfar hefur oft verið gagnrýnt fyrir að vera spillt og gera ekki öllum jafnt undir höfði.  Þessi kenning virðist algerlega afsannast með dómi yfir einum ríkasta manni Tyrklands, Mehmet Emin Karamehmet, sem dæmdur hefur verið í 11 ára fangelsi fyrir að misnota aðstöðu sína í rekstri banka í hans eigu, sem tyrkneska ríkið yfirtók árið 2002, vegna fjármálaóreiðu.

Í Tyrklandi, líkt og hérlendis, malar réttarkerfið hægt, þar sem það hefur tekið átta ár að fá fram dóm yfir þessum hrunbarón, en réttlætið hefur þó sigrað að lokum.  Tæpu einu og hálfu ári eftir bankahrunið hérlendis er ekki farið að ákæra einn einasta af banka- og útrásarrugludöllunum, sem settu allt í kaldakol hér á landi og virðast þeir allir nokkuð öruggir með sig og ekki reikna með neinum ákærum á hendur sér.

Reyndar eru þeir flestir í þeim flokki, sem "njóta trausts" hjá nýju bönkunum, enda eru þeir að fá gömlu félögin sín til baka á silfurfati, vegna þess að engum öðrum en þeim, er treystandi til að reka fyrirtækin.

Það er einkennilegt að Tyrkir skuli ekki hafa sama smekk fyrir sínum hrunbarónum.


mbl.is Tyrkneskur viðskiptajöfur í 11 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband