Hvar voru sérfræðingarnir fyrir ári síðan?

Samstaða virðist vera milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að fá álit erlendra sérfræðinga í alþjóðalögum og samningum milli ríkja, á þeim tillögum, sem farið hafa á milli manna á samráðsfundum allra flokka, að undanförnu.

Þetta er góðs viti, ef stjórnarflokkarnir verða tilbúnir til þess að éta ofan í sig Svavarssamninginn, sem líklega er versti samningur, sem gerður hefur verið í allri fjármálasögunni.  Hingað til hefur stjórnin barist fyrir þessum samningi með kjafti og klóm, gegn hagsmunum sinnar eigin þjóðar, en í þágu skattaþrælkunar Íslendinga fyrir Breta og Hollendinga.

Eftir sem áður lifir sú spurning, hvers vegna ekki var leitað til slíkra sérfræðinga fyrir heilu ári síðan.

Hefði það verið gert, er líklegt að einhver tiltrú hefði fengist á að vitglóra væri í samningnum.

Það hefur engum dottið í hug varðandi Svavarssamninginn.


mbl.is Beðið svara að utan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband