15.1.2010 | 20:42
Beiskur drykkur og baneitraður
Steingrímur J. upplýsti félaga sína í VG á flokkstjórnarfundi, að ofríki Breta og Hollendinga byggðist ekki á lagalegum grunni, væri óréttlátt og hrein kúgun, en betra væri að drekka þann drykk, en deyja úr þorsta.
Drykkurinn er vissulega beyskur, en það sem er verra, er að hann er eitraður og leiðir til dauða á skömmum tíma. Þá vaknar sú spurning, hvort ekki sé eins gott að deyja strax úr þorsta, frekar en kveljast af eitrinu og þola langvarandi og kvalafullan dauðdaga.
Stæðu menn frammi fyrir þeim afarkostum að láta hengja sig, eða kvelja til dauða, myndu flestir velja henginuna.
Betra en að deyja úr þorsta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þú ert enn við sama heigarðshornið. Bullar bara ábyrgðarlaust
Sævar (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 20:58
Sævar minn, klukkan er orðin margt, svo þú verður að fara að sofa strax og mamma verður búin að hita pelann þinn.
Axel Jóhann Axelsson, 15.1.2010 kl. 21:04
Því miður liggja hagsmunir Steingríms, Jóhönnu, Breta og Hollendinga ekki saman við hagsmuni íslensku þjóðarinnar.
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 15.1.2010 kl. 21:46
Axel ég gét ekki verið meira samála þér!
Sigurður Haraldsson, 15.1.2010 kl. 23:47
Þessi ,,Sævar" kann ekki einu sinni að stafa ,,heygarðshornið"...
Sigurjón, 16.1.2010 kl. 02:25
Núna heitir beiskur drykkurinn ICESAVE sem leiðtoginn Steingrímur J. vill að fólkið innbyrði upp á hans ábyrgð eins og hann hefur ítrekað beðið um að fá að bera. Afar heimskuleg samlíking að líkja óþverra og eða eiturdrykkju við þann vanda sem þjóðin stendur fram í fyrir. Háttur kjaftaska er að halda fram heimskulegum hlutum.
Árið 1978 innbyrði sértrúarflokkur í Gvæjana eftir skipun leiðtoga síns beiskan drykk sem kallaðist COOL AID, og á sína ábyrgð.
2 kjaftaskar sem breiða út dómsdagsspár ef þeim er ekki fylgt í blindni. 2 beiskir en ólíkir drykkir sem leiðtogar heimta að fylgismenn innbyrði vegna traust á gáfur þeirra og gjörvuleika. Aðeins annar þeirra hefur verið svo ósmekklegur að nýta sér linnulaust að samlíkingu óþverradrykks til að reyna að heilaþvo fylgismenn og þjóðina með hræðsluáróðri sínum.
Flestir vita hvernig óþverradrykkurinn fór hjá þeim sem innbirtu hann 1978. ICESAVE óþverradrykkurinn eins og klúðrið heitir í dag, er blandaður af Steingrími J. og hans ríkisstjórn. Hann skulu landsmenn drekka hvað sem það kostar. Áhrifin verða ekki jafn skelfileg og 1978, en nógu skelfileg samt.
http://www.youtube.com/watch?v=SSRKWb4LO3w
Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 16.1.2010 kl. 15:07
Niðurstöður frá 2008 sem Bjarni Ben studdi ásamt öllum öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins!
Flokksformennirnir semja og semja hver við annan! Og segjast sumir þeirra hafa góða trú á, að Hollendingar og Bretar fáist að samningaborðinu. Stjórnarandstöðunni tókst með lýðskrumi að þvinga ríkisstjórnina í viðræður við sig. Að þeim takist hið sama með Breta og Hollendinga má með réttu efast um. Hollendingar og Bretar hafa enga þörf fyrir að semja við Íslendinga uppá nýtt. En Íslendingar verða í mikilli klemmu verði enginn samningur um málið gildur!
„...en ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að Evrópusambandið hefði átt að standa miklu nær viðræðuferlinu," sagði Bjarni. Bjarna má benda á samning sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde gerði 16. nóvember 2008 við ESB. Þar voru lagðar línurnar um samningana, hin umsömdu viðmið. Ríkjunum var svo látið eftir að semja um smáatriðin. Í Viljayfirlýsingu Íslands og AGS 9. grein kemur einnig fram sama afstað. Bjarni Ben hefur endurtekið í sífellu, að samningurinn frá í haust sé ósanngjarn og að engin ríkisábyrgð gildi um innistæðutryggingar. Samt greiddi Bjarni einmitt atkvæði sitt tillögu um ríkisábyrg á innistæðum í íslenskum bönkum á Evrópska efnahagssvæðinu haustið 2008.
AGS hefur verið gagnrýndur fyrir þá afstöðu sem hann tók til endurskoðunar áætlunarinnar um endurreisnina eftir að ÓRG vísaði lögunum til þjóðarinnar.
Árni Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra og Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri undirrituðu Viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Í níundu grein þeirrar yfirlýsingar stendur orðrétt:
„Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innlánshöfum. Þetta byggist á þeim skilningi að unnt verði að forfjármagna þessar kröfur fyrir tilstyrk viðkomandi erlendra ríkja og að jafnt Ísland sem þessi ríki séu staðráðin í að efna til viðræðna á næstu dögum með það að markmiði að ná samkomulagi um nánari skilmála vegna þessarar forfjármögnunar." (15. nóvember 2008).
Hin umsömdu viðmið í samningi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde við ESB.
Auðun Gíslason, 16.1.2010 kl. 19:43
Auðunn, maður er nánast agndofa yfir því, að nokkur einasti Íslendingur skuli reyna að mæla yfirgangi, hótunum og þvingunum Breta, Hollendinga, ESB, AGS og norðurlandanna bót.
Nánast allt, sem þú ert að reyna að réttlæta, hefur verið hrakið hér á þessu bloggi, ennþá betur á mörgum öðrum bloggum, blaðagreinum innanland og utan, en samt á að berja hausnum við steininn og halda áfram að þjóna erlendu kúgunarvaldi.
Þú ættir að lesa betur 1. liðinn í umsömdu viðmiðunum, sem þú birtir sjálfur hér að ofan:
Þegar þú verður búinn að leggja þetta vel á minnið, skaltu lesa tilskipun 94/19EB og setja að því loknu inn nýja athugasemd, þar sem þú bendir á kaflann sem tekur til ríkisábyrgða á tryggingasjóðum innistæðueigenda.
Axel Jóhann Axelsson, 16.1.2010 kl. 20:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.