Ekkert hefur tekist ennþá

Á flokksráðsfundi VG í kvöld, sagði Steingrímur J. fundarmönnum frá framtíðardraumum sínum, enda hafði hann ekki frá öðru að segja en því, sem hann vonast til að afreka einhvern tíma seinna.

Helsti boðskapur hans til fundarins var eftirfarandi:  "Steingrímur kvaðst þá eiga þá draumsýn að geta í framtíðinni hugsað til baka og sagt „Já það tókst og það vorum við sem gerðum það."

Áður en þessi spaklegu orð féllu hafði hann þó gortað sig af því að atvinnuleysi hefði minnkað, en gleymdi að geta þess að tíu þúsund manns hafi flúið atvinnuleysið og flutt erlendis.  Það er árangur út af fyrir sig, sérstaklega hjá flokki, sem berst gegn hverju einasta atvinnutækifæri sem möguleiki væri á.

Vinir Steingríms í Englandi myndu hvetja hann áfram með því að segja:  "Keep dreaming, pal."


mbl.is „Já það tókst“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjarni tekur réttan pól í hæðina

Bjarni Benediktsson tók algerlega réttan pól í hæðina í setningarræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, þegar hann sagði að réttast væri að draga ESBumsóknina til baka og síðan mætti endurmeta stöðuna að nokkrum árum liðnum.  Líklegasta niðurstaðan verður þá, eins og nú, að hagsmunum Íslands verði best borgið utan við stórríkið.

Eftirfarandi orð Bjarna eru afar skynsamleg, en þau lét hann falla vegna þess áróðurs, að flokkurinn væri að fylgja einangrunarstefnu í alþjóðmálum:  "Forysta felst miklu fremur í staðfastri afstöðu sem stenst dóm tímans og baráttu fyrir því að Ísland skipi sér á hverri tíð þar í sess meðal þjóða sem skapar landsmönnum mesta farsæld.

Afstaða Sjálfstæðisflokksins á því ekkert skylt við einangrunarhyggju eða þjóðrembu. Hún byggir á raunsæu mati á því hvað þjónar hagsmunum Íslendinga best til langs tíma."

Vonandi mun fundurinn samþykkja harðorða yfirlýsingu um að aðildarumsóknin verði dregin til baka og að Ísland verði utan ESB um ókomna tíð.

Líki ekki einhverjum ESBsinnum slík ályktun, verða þeir að finna sér annan vettvang til að vinna skoðunum sínum framgang.

Þær eiga ekki heima innan Sjálfstæðisflokksins.


mbl.is Leggja aðildarumsókn til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráherrarnir vissu um lögleysu lánastofnananna

Í gær missti Gylfi Magnússon það út úr sér, að þegar gengistryggðu lánin hefðu verið flutt úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju, hefði verið reiknað með að gengistryggingin yrði dæmd ólögleg, en hins vegar hefði alltaf verið reiknað með að vextir Seðlabankans kæmu þá í staðinn fyrir samningsvextina.  Á þessu bloggi var því velt upp, að þessi yfirlýsing hans væri stórfrétt, sem fréttamenn hlytu að kafa nánar ofan í og krefjast nánari skýringa á ummælunum.  Það blogg má sjá hérna

Í dag tók Gylfi enn sterkar til orða í viðtali við fréttamenn, en ekki höfðu þeir samt rænu á að krefja hann um nánari skýringu á þessu máli, né hvers vegna harkan í innheimtu þessara ólöglegu lána var slík alveg fram að dómi Hæstaréttar.  Hvers vegna hafa ráðherrarnir aftekið allan þennan tíma, að hægt væri að leiðrétta höfuðstól þessara lána, fyrst þeir vissu að gengistryggingin væri ólögleg?  Fréttamenn, sem vilja vera starfi sínu vaxnir verða að ganga hart eftir skýringum á þessu.

Gylfi bætti um betur í dag og sagði algerlega fráleitt, að samningsvextir yrðu látnir gilda á þessum lánum, heldur ætti að miða við vexti Seðlabankans af óverðtryggðum lánum, enda hefði alltaf verið reiknað með að þeir kæmu í stað samningsvaxtanna.  Undir þetta hefur Steingrímur J. tekið, þannig að gera verður ráð fyrir að þetta sé orðin einhverskonar ákvörðun ríkisstjórnarinnar.

Líklega verður gefin út tilkynning um helgina, eða a.m.k. fyrir mánaðamót, að lánin verði endurreiknuð með vöxtum Seðlabankans og ef menn sætti sig ekki við það, þá verði þeir að stefna upp á nýtt.

Verði þetta niðurstaðan, án nýs dóms Hæstaréttar, verður mikið fjör í þjóðfélaginu í kjölfarið.


mbl.is „Engin bráðahætta á ferðum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Byr að reyna að blekkja vegna húsnæðislána?

Byr hefur sent skuldurum húsnæðislána óbreytta greiðsluseðla fyrir næstu áramót, með þeirri skýringu, að bankinn hafi aðeins lánað erlend húsnæðislán og því sé einhver óvissa ríkjandi um hvernig eigi að meðhöndla lán bankans.

Ein setning í yfirlýsingu Byrs vegna málsins vekur sérstaka athygli, en hún er svona:  „Meginskýringin er sú að við höfum aldrei boðið upp á bílalán í erlendri mynt, ef við hefðum verið að veita slík lán þá hefðum við auðvitað brugðist við eins og önnur fyrirtæki."

Dómur Hæstaréttar snerist alls ekki um bílalán í erlendri mynt, heldur lán í íslenskum krónum, með gengistryggingu miðaða við dagsgengi erlendra gjaldmiðla.   Það er algerlega ósambærilegt, að hafa veitt lán í íslenskum krónum, með gengistryggingu, eða hafa veitt lán með höfuðstól í erlendri mynt, eða myntum.  Íslensku lánin með gengistryggingunni voru af Hæstarétti úrskurðuð sem lán í íslenskri mynt og skyldi meðhöndla þau sem slík, enda gengistryggingin ólögmæt.

Fram að þessu hefur hins vegar verið talið fullkomlega löglegt að veita lán í erlendum gjaldmiðlum, en þá þarf líka höfuðstólinn og afborganirnar að vera tilgreindar í erlenda gjaldmiðlinum og því getur Byr á engan hátt borðið þessar lánategundir saman, eða sett þær undir sama hatt.

Hafi íbúðalán Byrs verið tilgreind í íslenskum krónum, með gengisviðmiðun, þá eru þau ólögleg og þau ber að uppreikna í samræmi við dóma Hæstaréttar og undan því getur bankinn ekki vikist.  Með því að nota það orðalag, sem Byr gerði í yfirlýsingu sinni er ekkert annað en tilraun til blekkinga, sem ekki er nokkurri lánastofnun sæmandi.

Úrskurður Hæstaréttar var skýr og hreint ekki flókið að fara eftir honum.  Það ber að gera strax, hvort sem mönnum líkar betur eða verr.

 


mbl.is Byr sendir óbreytta greiðsluseðla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsfundur hafni ESB og kveðji aðildarsinna endanlega

Allt útlit er fyrir að hart verði tekist á um ESBmál á landsfundi Sjálfstæðisflokksins nú um helgina, en mikill minnihluti flokksmanna styður aðild að sambandinu.  Sá minnihluti hefur verið að gera sig gildandi undanfarið með stórkarlalegum yfirlýsingum um hættu á klofningi flokksins, ef harðorð ályktun verði samþykkt gegn því að Ísland láti innlima sig sem hrepp í væntanlegt stórríki Evrópu.

Einungis Samfylkingin hefur fullveldisframsal til Brussel á stefnuskrá sinni, en Framsóknarflokkurinn samþykkti á sínum tíma, að hann gæti fellt sig við innlimunina, að svo ströngum skilyrðum uppfylltum að það jafngilti höfnun, en VG hefur alfarið ályktað gegn ESB, þó ekki hafi verið farið eftir þeirri stefnumörkun undanfarið.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur talið að hagsmunum Íslands sé best borgið utan ESB, án þess þó að geirnegla þá afstöðu í landsfundarsamþykktir, þannig að aðildarsinnar hafa haft nokkuð frítt spil innan flokksins til að ástunda áróður fyrir hugsjónir Samfylkingarmanna innan félaga og stofnana flokksins.

Nú verður Sjálfstæðisflokkurinn að negla niður kýrskýra afstöðu gegn öllum tilburðum til innlimunar Íslands i stórríkið og þeir, sem fram að þessu hafa talið sig til flokksmanna, en geta ekki fellt sig við þá stefnu, gangi þá til liðs við þann flokk, sem myndi taka fagnandi öllum þeim, sem tilbúnir eru til að framselja hluta af fullveldi landsins til erlendra aðila.

Sjálfstæðisflokkurinn má ekki og getur ekki komist hjá því að láta sverfa til stáls í þessu stóra og afdrifaríka máli og ekki láta hótanir um klofning koma í veg fyrir afdráttarlausa sjálfstæðisyfirlýsingu á landsfundinum.  Sá fámenni, en háværi hópur, sem ekki sættir sig við það, fer þá bara sína leið, þangað sem hann á betur heima. 

Meirihluti þjóðarinnar er alfarið á móti aðildarumsókninni að ESB og hana ber að draga til baka strax og ekki eyða meiri tíma og peningum í "bjölluatið í Brussel", eins og það hefur verið kallað.  Fari einhverjir úr Sjálfstæðisflokknum við afgerandi afstöðu landsfundar gegn ESB, þá munu margfalt fleiri koma til liðs við flokkinn, taki hann skýra og afdráttarlausa forystu gegn fullveldisafsalinu.

Nú er kominn tími til að láta sverfa til stáls ef á þarf að halda.  Það væri þá bara liður í að skýra línur í íslenskri pólitík og koma Sjálfstæðisflokknum aftur í það forystuhlutverk um mótun íslenskrar framtíðar, sem hann hafði svo afgerandi áður fyrr.

Þessi helgi veður að vera algert uppgjör á milli stefnu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar.


mbl.is Búist við átökum um ESB á landsfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. júní 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband