12.2.2010 | 19:19
Ólafur gefur ekkert eftir
Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, stendur í ströngu þessa dagana úti í Luxemborg við leit á einkaheimilum og í Banque Havilland, bankanum sem yfirtók starfsemi Kaupþings þar í landi.
Margur fjárglæframaðurinn andaði léttar, þegar starfsemi Kaupþings í Luxemborg var seld, því þar með reiknuðu þeir með, að bankaleyndin í Luxemburg myndi sjá til þess, að engar upplýsingar fengjust þaðan, um þau "myrkraverk" sem unnin voru af íslensku bönkunum þar í landi og teygðu anga sína um öll skattaskjól veraldar.
Nú er þessum sömu fjárglæframönnum væntanlega þungt um andardráttinn, því við þessa rannsókn mum margt gruggugt koma í ljós og ýmislegt fleira, en tengist viðskiptum með hlutabréf Kaupþings og afleiðuviðskiptin, sem Ólafur segir að séu grunnur leitarinnar.
Ólafur Hauksson hefur staðið sig frábærlega frá því að hann tók til starfa sem sérstakur saksóknari, og ekki hefur skemmt fyrir, að njóta ráðgjafar Evu Joly um þessar glæparannsóknir.
Þó svona fjárglæfrarannsóknir séu afar flóknar og tímafrekar, mun hið sanna koma í ljós áður en yfir lýkur og þá mun margur "góðborgarinn" afhjúpast sem réttur og sléttur skúrkur af stærri gerðinni.
![]() |
Leitað í Lúxemborg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.2.2010 | 15:53
Vinstri stjórnin tefur hagvöxt
Samtök atvinnulífsins segja, að það þurfi 5% árlegan hagvöxt, til þess að eyða atvinnuleysinu fyrir árið 2015, þ.e. með slíkum hagvexti tæki sjö ár, að koma landinu á sama stað og það var fyrir hrun.
Allir greiningaraðilar telja að 2,5% árlegur hagvöxtur sé ágætur í eðlilegu árferði og 3,5% afar gott, þó mögulega geti komið eitt og eitt ár, með meiri hagvöxt en þessi meðaltöl.
Með aðgerðum sínum og aðgerðarleysi hefur vinstri stjórninni í landinu tekist að tefja alla atvinnuuppbyggingu í heilt ár og ekki útlit fyrir annað, en að hún muni halda áfram að flækja og tefja alla uppbyggingu, sérstaklega í útflutningsgreinunum, sem einmitt þyrfti allra helst að efla.
Fimm prósent árlegur hagvöxtur er gjörsamlega óraunhæft markmið, á meðan vinstri grænir ráðherrar sitja í þeim ráðuneytum, sem geta eyðilagt fyrir atvinnuuppbyggingunni.
Samtök atvinnulífsins segja að verði ekki af þessum 5% árlega hagvexti, muni framundan vera áratugur hinna glötuðu tækifæra.
Sitji ríkisstjórnin út kjörtímabilið gæti hún verið búin að valda svo miklu tjóni, að það muni taka tvo áratugi fyrir þjóðarbúið að jafna sig.
Því fyrr, sem þjóðin losnar við þessa ríkisstjórn, því betra.
![]() |
5% árlegur hagvöxtur nauðsyn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.2.2010 | 14:35
Hárrétt hjá Guðlaugi Þór
Það er alveg hárrétt hjá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, að nauðsynlegt er að farið verði ofan í saumana á verkum fjármálastofnanna eftir hrun, ekkert síður en á því, sem gerðist fyrir hrun. Á það bæði við um störf skilanefnda gömlu bankanna og starfsemi nýju bankanna.
Ekkert hefur verið upplýst um, hvað mikið hefur verið afskrifað af bankastjórum og starfsmönnum gömlu bankanna, né vegna útrásartaparanna og annarra af skilanefndum bankanna, enda hefur öll starfsemi þeirra verið þoku hulin og falin af bankaleynd.
Ekki síður þarf að fara ofan í afskriftir og aðrar gerðir nýju bankanna gagnvart því liði, sem setti þjóðfélagið á hausinn með glæpsamlegum lántökum og áhættutöku í alls kyns fyrirtækjum, innanlands og utan.
Að minnsta kosti í tveim nýlegum tilvikum, hafa bankarnir algerlega gengið fram af almenningsálitinu, en það er þegar Ólafi Ólafssyni var fært Samskip á silfurfati, þrátt fyrir gífurlegar fyrirséðar afskriftir skulda honum tengdum, fyrir utan að hann sætir sakamálarannsókn.
Hitt nýlega tifellið er sú ákvörðun Arion banka, að afskrifa meginhluta 70 milljarða skulda fyrirtækis Bónusfeðga, 1998 ehf., en afhenda þeim síðan Haga bakdyramegin, með því að gefa þeim og félögum þeirra kost á að ná þar undirtökunum á nýjan leik, enda þarf ekki stóran hlut í fyrirtæki, sem er á hlutabréfamarkaði, til þess að ná ráðandi stöðu.
Þetta og margt fleira þarf að rannsaka almennilega, með því að framlengja starf Rannsóknarnefndar Alþingis, eftir að hún hefur lokið störfum vegna þess sem gerðist fyrir bankahrun.
Margt bendir til að ýmislegt, sem ekki þolir dagsljósis, hafi átt sér stað allt frá hruni og fram á þennan dag.
![]() |
Rannsaka þarf það sem gerst hefur frá hruni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.2.2010 | 11:23
Af hverju bjargaði evran þeim ekki?
Viðreisn efnahagslífs Evrópu hefur stöðvast aftur, eftir að það virtist ætla að rétta úr kútnum, eftir örlítinn bata á þriðja ársfjórðungi 2009. Samdráttur varð aftur á Ítalíu á fjórða ársfjórungi 2009 og það sem mest um munar, er að stöðnun var í þýska hagkerfinu, en eins og allir vita hefur það verið Þýskaland, sem hefur í raun haldið efnahag ESB gangandi fram að þessu.
Evrópulönd eru að byrja að rétta úr kútnum eftir mesta efnahagssamdrátt, sem sögur fara af og þvert á fullyrððingar íslenskra aðdáenda ESB um að evran sé töfragjaldmiðill, þá hefur hún alls ekki bjargað neinu, heldur þvert á móti verið alger dragbítur á flest evrulönd, t.d. Grikkland, Ítalíu, Spán, Portúgal og Írland, svo einhver lönd séu nefnd.
Efnahagur Grikklands er hruninn og vegna evrunnar eru hin ESB ríkin komin í þá aðstöðu í fyrsta sinn, að neyðast til að láta skattgreiðendur sína yfirtaka stóran hluta ríkisskulda Grikklands og a.m.k. er víst, að þýskur almenningur mun ekki taka því fagnandi.
Líklega er þetta ekki bara upphafið að gliðnun ESB, heldur upphafið að endalokum evrunnar.
Er þetta draumurinn um stórríkið, sem sumir vilja innlima íslendinga í, án þess að hafa þar einu sinni hreppstjóra?
![]() |
Stöðnun í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
12.2.2010 | 10:05
Á ekki að svara fyrir sig
Hollendingr herða nú róðurinn gegn Íslendingum og beita hvers kyns áróðri, nú þegar þeir sjá fram á að þurfa að falla frá kúgunum sínum gegn saklausum íslenskum skattgreiðendum vegna Icesave skulda Landsbankans í Hollandi.
Bos, fjármálaráðherra Hollands, hefur sett af stað rannsókn á fullyrðingum hollenska seðlabankastjórans um að íslensk yfirvöld hafi verið síljúgandi að kollegum sínum í Hollandi, um stöðu íslensku bankanna og efnahags landsins.
Þetta er auðvitað áróðursbragð af hálfu Hollendinga, nú þegar nýjar samningaviðræður við þá og Breta eru fyrir höndum og komið hefur fram áður, að Hollendingar eru öllu illskeyttari i yfirgangnum gegn íslenskum skattgreiðendum, en Bretar og er þá mikið sagt.
Íslensk stjórnvöld hafa staðið sig ótrúlega illa í kynningu síns málstaðar, fram undir það allra síðasta og ekkert ber á því, að þau ætli að svara Hollendingum í sömu mynt og fullum hálsi.
Ætla Íslendingar virkilega að láta Hollendinga og Breta vaða yfir sig aftur með áróðri og ásökunum, án þess að gera minnstu tilraun til að slá frá sér.
![]() |
Rannsaka ásakanir um lygar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
12.2.2010 | 08:49
Hollendingar viðurkenndu ábyrgð tryggingasjóðsins
Hollenski seðlabankinn bannaði Kaupþingi að opna innlánsreikninga, svipaða Icesave, vegna þess að hann hafði áhyggjur af ótraustri stöðu íslensks efnahagslífs. Þetta gerðist skömmu eftir að Landsbankinn opnaði Icesave í Hollandi og er undarlegt, að ekki hafi verið gripið til sömu aðgerða gegn Landsbankanum, fyrst Hollendingarnir voru orðnir áhyggjufullir vegna efnahagsástandsins.
Athyglisverðast er, að rök hollenska seðlabankans voru ekki síst þau, að íslenski innistæðutryggingasjóðurinn væri of veikburða til þess að geta tryggt innistæðurnar í Hollandi. Á þeim tíma var Hollendingum fullkunnugt um, að engin ríkisábyrgð væri á sjóðnum og því yrði hann að vera bakhjarl innlánsreikninganna, einn og óstuddur.
Þetta sýnir þá hentistefnu, sem bresk og hollensk yfirvöld hafa iðkað í samskiptum sínum við íslensk yfirvöld, eftir bankahrun.
Svona hentistefna heitir öðru nafni yfirgangur, óréttlæti og kúgun.
![]() |
Kaupþing stoppað af í Hollandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2010 | 00:06
Undarlegt forval hjá VG
Óskiljanlegar prófkjörsreglur og misjöfn túlkun þeirra milli dags og nætur, hafa nú orðið til þess að mussuhippi mun leiða listann í borgarstjórnarkosningunum í vor og kjörstjórnin sá sér ekki fært að stilla listanum þannig upp og sagði af sér hið skjótasta.
Það hefur komið fram, að fólk út í bæ gat prentað út kjörseðla, væntanlega úr tölvu, og farið með þá heim til fólks, látið það kjósa, eða kosið fyrir það og skilað síðan seðlinum í kjörkassa á kjörstað. Í öllum alvöru kosningum eru kjörseðlar forprentaðir og ekki afhentir neinum nema kjósanda sjálfum, sem svo merkir á hann og skilar honum svo sjálfur af sér í kjörkassann.
Ótrúlegt er að nokkur sátt verði innan VG um lista, sem verður til með svona vinnubrögðum, enda má reikna með því, að fylgi listans verði samkvæmt því í kosningunum í vor.
![]() |
Kjörstjórn víkur og forvalsreglur VG verða skoðaðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)