19.12.2010 | 15:18
Nauðgun eða ekki, þar liggur efinn
Í fréttinni á mb.l.is "Konurnar sem ásaka Assange" er sagt frá nokkuð skrýtnum ásökunum tveggja sænskra kvenna á hendur Julian Assange, stofnanda Wikileaks, um nauðganir hans gegn sér og segir í fréttinni frá því sem fram kemur í sænskum blöðum vegna ákæranna og þar má sjá þetta m.a: "Fröken A og Assange höfðu margoft kynmök í eins herbergis íbúð hennar í Stokkhólmi, samkvæmt sænskum götublöðum sem greindu frá smáatriðum sem voru yfirstrikuð í afritum af vitnisburði sem fröken A gaf lögreglunni.Fulltrúar sænska saksóknarans sögðu við yfirheyrslu breska dómstólsins að ólögleg þvingun hafi farið fram 14. ágúst því þá hafi Assange haldið fröken A fastri á kynferðislegan hátt.Tilvik sem varð 18. ágúst er flokkað sem kynferðisleg áreitni því þá hafði Assange kynmök við fröken A án þess að nota verju, þrátt fyrir skýran vilja hennar um að verja væri notuð. Breski rétturinn fékk líka að heyra að Assange hafi viljandi áreitt fröken A sama kvöld sem braut gegn henni kynferðislega.Þrátt fyrir þetta dvaldi Assange áfram í íbúð frökenar A til 20. ágúst og fylgdi henni í samkvæmi 15. ágúst."
Lýsingin á nauðgun hinnar konunnar er ekki eins skrautleg, enda um eitt tilvik að ræða, sem lýst er svona: "Ásökunin um nauðgun er rakin til atviks sem varð síðar þetta kvöld í heimili frökenar W. Hún sagði breska réttinum að Assange hafi haft kynmök við hana þegar hún var sofandi og notaði hann ekki verju.Þau borðuðu saman morgunmat morguninn eftir og í tilraun til að af-dramatísera það sem gerðist gerði hún kaldhæðnar athugasemdir. Hún fylgdi honum síðan á brautarstöðina og hann lofaði að hringja til hennar."
Í báðum tilvikum virðist vera um að ræða konur með að minnsta kosti meðalgreind og því vekur það nokkra furðu, að þær skuli ekki einu sinni sjálfar hafa uppgötvað að um nauðgun hafi verið að ræða, heldur hafi lögreglukona þurft að benda þeim á það og kæra þessar "nauðganir" til dómstóla fyrir þær, en samkvæmt fréttinni fóru þær til lögreglunnar vegna ótta við að hafa smitast af Alnæmi. Í flestum tilfellum leitar þó fólk til heilbrigðisstofnana til að fá úrskurð um sjúkdómasmit, en í Svíþjóð virðist það vera hlutverk rannsóknarlögreglu sænska ríkisins að upplýsa um slíkt.
Ef hægt er að dæma karlmenn fyrir nauðgun á forsendum svipuðum þeim sem hér koma fram, geta konur hér eftir kært karlpeninginn vegna nauðgunuar fyrir hvað sem er og hægt er að tengja kynlífi, eða "kynferislegri áreitni", jafnvel bara óánægju með að ekki hafi allt farið fram eins og þær "hefðu viljað eða verið vanar".
Ef til vill kemur fljótlega fram kæra um nauðgun, vegna þess að karlmaður hafi átt kynmök við konu án þess að fullnægja henni og þar með hafi samfarirnar verið niðurlægjandi fyrir hana og eingöngu til þess fallnar að karlinn "næði sínu fram".
"Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann?" spurði Jón Hreggviðsson í Íslandsklukkunni. Svipaðar spurningar gætu farið að vakna um fleiri mannanna gerðir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)