Bjarni Ben. er framtíðarleiðtogi þjóðarinnar

Það hefur komið æ betur í ljós undanfarnar vikur, að tilfinnanlega skortir leiðtogaefni fyir þjóðina úr röðum Alþingismanna og aðeins einn maður hefur sýnt að hann búi yfir þeim eiginleikum, sem góður forystumaður ríkisstjórnar þarf að vera gæddur. 

Jóhanna Sigurðardóttir er búin að fá sinn tíma og hefur notað hann til að sýna og sanna vanhæfni sína í leiðtogahlutverki og Steingrímur J. hefur einnig glutrað niður allri tiltrú, sem sumir höfðu á honum og nú er svo komið að ekki einu sinni hans hörðustu fyrrum stuðningsmenn innan VG treysta honum lengur, vegna svika hans við öll helstu stefnumál flokksins frá stofnun hans.

Um Þór Saari þarf ekki að hafa mörg orð og þó Sigmundur Davíð hafi sýnt ýmsa góða spretti á þinginu, hefur hann ekki sýnt af sér þá leiðtogahæfileika sem þarf til að leiða ríkisstjórn.  Bjarni Benediktsson er sá eini sem nú situr á þingi, sem hefur sýnt af sér virkilega hæfileika til að stjórna og leiða fólk til góðra verka og hefur farið sívaxandi í starfi sínu undanfarna mánuði og sýnt og sannað að hann er framtíðarleiðtogaefni þjóðarinnar.

Bjarni er skarpur, ákveðinn, fylginn sér en sanngjarn og hefur sýnt að hann er úrræða- og tillögugóður í erfiðum málum, enda leitar ríkisstjórnin nú til hans með beiðni um að leiða stjórnina inn á vænlegar brautir við úrlausn þeirra verkefna, sem hún hefur ekki getað leyst úr á undanförnum átján mánuðum.

Hitt er svo annað mál, að vænlegra til árangurs í erfiðleikum þjóðarbúsins er, að ríkisstjórnin fari strax frá og Bjarna verði falið að mynda nýja ríkisstjórn strax.


mbl.is Boða formenn flokka á fund í fyrramálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausn sem gæti lagað ástandið strax

Ríkisstjórnin talar mikið um hve flókið sé og dýrt að taka á skuldavanda heimilanna eins og þarf og hefur því ekki getað bent á neinar lausnir og er orðin gjörsamlega ráða- og getulaus til þess að gera nokkuð raunhæft í málunum.  Í upphafi þings var sagt að ekkert yrði gert meira í skuldavanda heimilanna og AGS gefið loforð um að ekki yrði gefinn frekari frestur á uppboðum fasteigna þeirra, sem í mestum greiðsluvanda eru.  Stjórnin hefur líka sagt að vinna að lausnum á þessum málum sé svo tímafrek, að ekki hafi ennþá gefist tími til að finna viðundadi lausnir, en nú verði þessi mál sett í forgang. 

Allir hljóta að sjá, að það er engin lausn á vandamáli að selja íbúðarhúsnæði ofan af fólki, jafnvel þó fylgi því heimild til að leigja húsnæðið í eitt ár eftir sölu.  Með þessu er skapað nýtt vandamál, án þess að leysa það fyrra, því væntanlega er viðkomandi fjölskylda í vanskilum með fleira en íbúðarlánið og aðrir skuldheimtumenn munu því halda áfram að eltast við fólkið, allt fram að því að það yrði lýst gjaldþrota og jafnvel árum saman eftir það.

Besta tillaga sem komið hefur fram ennþá í þessu efni, er tillaga Sjálfstæðismanna um að einungis verði innheimtur helmingur íbúðalána næstu þrjú ár og hinn helmingurinn færður aftur fyrir lánstímann og þessi þrjú ár verði notuð til að finna endanlega lausn á þeim vanda, sem stökkbreytt lán hafa valdið og fólk fengi þessi þrjú ár til að greiða og semja um aðrar skuldir en íbúðalánin.  Í þessari vinnu yrðu mál þeirra allra verst settu tekin fyrir fyrst og leyst úr þeim, því ekki fer hjá því að alltaf verða einhverjir sem þurfa á sérlausnum að halda.

Þessi tillaga náði ekki fram að ganga á þingi vegna þess að hún kom frá stjórnarandstöðuflokki og nú verður að krefjast þess að slíkur gamaldags skotgrafarhernaður verði aflagður og þingmenn sameinist um þær fáu nýtilegu tillögur sem litið hafa dagsins ljós fram að þessu og nýti tímann, sem slík frestunartillaga gæfi, til að finna varanlegar lausnir.

Tunnuslátturinn í dag verður áminning um ný vinnubrögð í þinginu og samstöðu um að leysa málin, jafnvel þó tillögurnar komi frá stjórnarandstöðunni.


mbl.is Þingið er óstarfhæft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reynt að spila með stjórnarandstöðuna og almenning

Hreyfingin sér ástæðu til að senda frá sér sérstaka yfirlýsingu um að hún sé tilbúin til þátttöku í mótun tillagna til lausnar á vanda heimilanna og er hún send út í tilefni af ósannindum Jóhönnu Sigurðardóttur um að stjórnarandstaðan hefði engan áhuga á samvinnu við ríkisstjórnina um málið.

Fulltrúar stjórnarandstöðunnar voru kallaðir á fund ríkisstjórnarinnar í gær og voru allir sammála um það, eftir fundinn, að ríkisstjórnin hefði engar tillögur um nýjar lausnir lagt fram og einungis ætlast til að stjórnarandstaðan lýsti yfir samstöðu sinni við þær aðgerðir, sem þegar hefði verið ráðist í, en hafa sýnt sig vera bæði lélegar og alls ófullnægjandi.

Stjórnarandstaðan var ekki boðuð til nýs fundar í dag, eins og Jóhanna hafði gefið fyrirheit um, enda var aldrei ætlunin að samþykkja nokkrar einustu tillögur frá stjórnarandstöðunni, heldur var tilgangurinn allan tímann að blekkja almenning með því, að láta líta út fyrir að samstaða væri á þinginu um að ekkert frekar yrði gert varðandi þessi vandamál.

Þegar ljóst var að stjórnarandstaðan ætlaði ekki að láta spila með sig, greip ríkisstjórnin til þess ráðs að boða Hagsmunasamtök heimilanna til fundar og lætur eftir hann eins og hún sé áhugasöm um að skoða hugmyndir samtakanna frekar, en fram að þessu hafa ráðherrarnir sagt að þær séu algerlega óframkvæmanlegar.  Eini tilgangur þessa fundar var að reyna að slá á reiði almennings og vonast til, að með honum væri hægt að koma í veg fyrir, eða takmarka verulega, frekari mótmæli á Austurvelli.

Skuldamál heimilanna munu hafa algeran forgang á næstunni, segir Jóhanna núna.  Það er mikið að hún skilur loksins alvöru málsins, en þó er skilningurinn ekki nógu mikill til að hætta sýndarmennskunni og reyna ekki að spila með stjórnarandstöðuna á þingi og almenning í landinu.


mbl.is Hafa áhuga á samstarfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleikafirrtir þingmenn

Hvernig í ósköpunum ætli að standi á því, að á meðan tunnur eru barðar á stærsta útifundi sögunnar á Austurvelli, vegna vanda heimilanna í landinu og ræfildómi ríkisstjórnarninnar til að koma til móts við þann vanda og getu- og viljaleysinu til að koma hjólum atvinnulífsins til að snúast, þá dettur þingmönnum ekki í hug að leggja einhverjar hugmyndir til málanna til lausnar vandans og hugsa ekki einu sinni um hann.

Fimmtán þingmenn leggja nú fram í tíunda sinn, frumvarp um að banna kjarnorkuvopn á landinu og í nágrenni þess, eins og mesta vandamálið sem nú sé við að glíma hérlendis séu haugar af kjarorkuvopnum, kjarnaknúnum skipum eða kjarnorkuúrgangi.

Á meðan þingmenn eru svona gjörsamlega veruleikafirrtir og skilja ekki ennþá, að almenningur er að kalla eftir því að öll svona gæluverkefni verði sett í salt á meða fjallað er um alvöru mál og þau leyst, verður ekkert lát á mótmælafundum á Austurvelli.

Þessir fimmtán þingmenn eru sjálfum sér og Alþingi til stórskammar.


mbl.is Frumvarp flutt í tíunda sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrek til að taka á vandanum

Í dag eru tvö ár frá því að banka- og efnahagshrunið skall á þjóðinni af fullum þunga og neyðarlögin voru sett, til að bjarga því sem bjargað varð í peningamálum þjóðarinnar, þ.e. að stofna nýja banka í stað þeirra gömlu og flytja innistæður á milli þeirra og útistandandi kröfur bankanna á móti og síðan lagði ríkissjóður bönkunum til hlutafé.

Við fall bankanna urðu margir fjármagnseigendur fyrir gríðarlegu tapi, bæði þar sem hlutabréfaeign tapaðist nánast öll á einu bretti og skuldabréf urðu mörg verðlaus og eignir í peningamarkaðssjóðum rýrnuðu verulega.  Gengi erlendra gjaldmiðla, sem hafði byrjað að hækka í mars 2008, fór upp úr öllu valdi í kjölfar hrunsins, sem leiddi til gífulegrar hækkunar á erlendum skuldum og verðbólgan í kjölfarið hækkaði vísitölubundnar skuldir verulega.

Ríkisstjórn Geirs H. Haarde hrökklaðist frá völdum í kjölfar "búsáhaldabyltingarinnar" og við völdum tók ríkisstjórn, sem síðan hefur sannað sig sem einhverja þá alverstu, sem um stjórnartaumana hefur haldið frá lýðveldisstofnun og hefur ekki haft getu, vilja né hugmyndir til þess að glíma við þann vanda, sem hrunið olli heimilunum í landinu og þjóðfélaginu öllu.

Í stað þess að leggja áherslu á atvinnuuppbyggingu og minnkun atvinnuleysis, hefur ríkisstjórnin þvert á móti barist með öllum sínum ráðum gegn öllum hugmyndum og undirbúningi að nýjum atvinnutækifærum og hefur reynst algerlega ráðalaus gagnvart vanda heimilanna og reyndar aukið hann umtalsvert með skattahækkunarbrjálæði sínu og bótaskerðingum til barnafjölskyldna og íbúðakaupenda, að ekki sé nú minnst á elli- og örorkulífeyrisþega.

Á mánudag reis almenningur upp gegn þessari vesælu ríkisstjórn með stærsta útifundi Íslandssögunnar, sem fram fór á Austurvelli við þingsetningu og í kjölfarið á honum virtust ráðherrar loksins byrja að átta sig á alvöru mála, en vegna skorts á úrræðum og hugmyndum ákölluðu þeir stjórnarandstöðuna sér til bjargar, en eins og flest annað sem stjórnin hefur gert, sýndi sú fundarboðun sig vera tóm sýndarmennska og stjórnin gat ekkert nýtt lagt þar fram, en ætlaðist til þess að stjórnarandstaðan legði blessun sína yfir að ekkert yrði gert frekar í skuldavanda fjölskyldnanna í landinu.

Orð Ólafar Nordal, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, sem hún lét falla að fundi loknum, segja allt sem segja þarf um ríkisstjórnina og ráðherra hennar, en Ólöf sagði m.a:  "Menn verða bara að hafa þrek til að taka á þeim vanda sem framundan er. Ef ríkisstjórnin getur það ekki verður hún bara að fara frá."


mbl.is Fela sig á bak við AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband