20.10.2010 | 10:02
Níðingsskapur gagnvart öldruðum sjúklingum
Almenningur greiðir fyrir heilbrigðiskerfið með sköttum sínum alla ævina, hvort sem hann nýtir þjónustu þess meira eða minna um dagana, en við bætast komugjöld og önnur smærri gjöld vítt og breitt um kerfið, sem ríkisstjórnir hafa klínt á sjúklinga í gegn um tíðina, þegar létta hefur þurft kostnaði af ríkissjóði og hefur það verið kallað að spara í ríkisrekstrinum. Ríkið notast mjög oft við þá auðveldu sparnaðarleið að koma kostnaði yfir á aðra, en auðvitað sparast ekkert við slíkar aðgerðir, greiðslan er aðeins flutt beint yfir á sjúklingana í stað þess að innheimta hana með almennum sköttum.
Það allra ósanngjarnasta og níðingslegasta sem viðgengist hefur lengi í heilbrigðiskerfinu er sú aðgerð að haldleggja nánast allar elli- og lífeyrisgreiðslur þeirra öldruðu, þegar heilsan fer að gefa sig á seinasta hluta ævinnar og þeir þurfa virkilega á þjónustu þess heilbrigðiskerfis að halda, sem þeir hafa greitt til alla sína ævi með skattgreiðslum sínum. Hér er auðvitað átt við það rán, sem viðgengst á hjúkrunar- og dvalarheimilum aldraðra, en þá telur "kerfið" réttlætanlegt að innheimta fullan sjúklingaskatt af þessum öldruðu sjúklingum.
Í fréttinni kemur þetta fram um þennan öldrunarsjúkdómaskatt: "Í ár gildir að ef mánaðartekjur íbúa á öldrunar- og hjúkrunarheimilum eru yfir 65.005 kr. á mánuði, eftir skatta, þá tekur hann þátt í dvalarkostnaði með þeim tekjum sem umfram eru. Greiðslurnar verða þó aldrei hærri en 281.871 kr. á mánuði, en greiðsluhámarkið hefur hækkað um 70.000 krónur frá árinu 2007. Á sama tíma hefur öldrunarrýmum fækkað um rúmlega 350."
Getur það verið að þetta sé það réttlæti sem yngri kynslóðirnar vilja sýna foreldrum sínum og öðrum öldruðum og sjúkum ættingjum?
![]() |
Hærri gjöld og fleiri borga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
20.10.2010 | 00:56
Jákvætt fyrir þá ógæfusömu
Það er gríðarleg ógæfa fyrir einstaklinga að verða gjaldþrota og hjá því reyna allir með snefil af sjálfsvirðingu að komast ef þeir hafa nokkra möguleika því. Allt heiðvirt fólk reynir allt sem í þess valdi stendur til þess að greiða skuldir sínar og leggur allt í sölurnar til þess, en stundum fara menn óvarlega í lántökum, eða aðstæður breytast vegna ófyrirséðra atvika, þannig að viðkomandi einstaklingur getur ekki með nokkru móti greitt skuldir sínar og eignir hans duga ekki til uppgjörs á þeim lánum, sem tekin hafa verið og þá verður ekki hjá því ömurlega hlutskipti komist að lýsa yfir gjaldþroti.
Fram til þessa hefur sá einstaklingur, sem í slíkri ógæfu hefur lent, getað átt á hættu að skuldheimtumenn elti hann fram í rauðan dauðann vegna þeirra skulda, sem hann gat með engu móti greitt fyrir gjaldþrotið og þannig var hægt að koma í veg fyrir að sá sem einu sinni hafði orðið gjaldþrota eignaðist nokkurn tíma raunverulegt líf á ný, þar sem hann gæti byggt sig upp að nýju með eðlilegri og löglegri vinnu og fasteign, eða aðrar veraldlegar eignir gat hann aldrei látið skrá á sitt nafn framar.
Þetta leiddi til þess að viðkomandi var nánast útlægur úr samfélaginu, a.m.k. frá allri eignamyndun og margar fjölskyldur hafa sundrast í kjölfar gjaldþrotahörmunganna, því ekki er það allra að standast það álag, sem lífi eftir gjaldþrot hefur fylgt.
Sú breyting sem nú er fyrirhuguð á gjaldþrotalögunum í þá veru að ekki sé hægt að viðhalda kröfum nema í tvö ár er því mikil bót fyrir þá sem svo ógæusamir verða, að neyðast til að lýsa sig gjaldþrota. Enginn lýsir sig gjaldþrota að gamni sínu og ekki trúlegt að það breytist þó auðveldara verði fyrir fólk að koma fótum undir sig að nýju eftir algjöran eignamissi. Þó má reikna með að sá sem gjaldþrota verður komi til með að eiga í vandræðum með að fá lán að nýju í einhver ár eftir hörmungarnar, því nöfn þeirra verða vandlega skráð í tölvukerfi allra lánastofnana og rautt ljós mun kvikna á skjánum, þegar kennitölunum verður flett upp.
Eftir sem áður er þetta bót fyrir þá sem verst brenna sig á fjármálavafstri sínu og eitt af því fáa jákvæða sem frá ríkisstjórninni hefur komið.
![]() |
Frumvarpið mannréttindabót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)