Jón Bjarnason reynist ríkissjóði dýr

Sú ákvörðun Jóns Bjarnasonar að gefa rækjuveiðar frjálsar, þ.e að taka rækjuna út úr kvóta, ætlar að reynast ríkissjóði dýr, þar sem Byggðastofnun, sérleg lánastofnun ríkisins, þarf að afskrifa sjö hundruð milljónir króna vegn lána til þriggja útgerðarfélaga, sem áður fengu úthlutuðum rækjukvóta.

Hvaða skoðun sem menn annars hafa á því, hvort rétt eða rangt hafi verið að gera þessa breytingu á sjávarútvegsstefnunni, verður það að teljast stórmerkilegt að einn ráðherra skuli geta kollvarpað heilu fiskveiðistjórnunarkerfi án nokkurs samráðs við aðra ráðherra og hvað þá Alþingi, sem þó á að setja landinu lög og hlutverk ríkisstjórnarinnar að framfylgja þeim.

Jón Bjarnason hefur gefið í skyn að hann ætli að gera hinar og þessar breytingar á kvótakerfinu og virðist ekki heldur ætla að bera þær undir nokkurn mann, né athuga hvort slíkar breytingar gætu kostað Byggðastofnun og ríkissjóð stórfé.

Allt sýnir þetta hverskonar lausatök og persónulegir dyntir einstaklinga ráða miklu við stjórn landsins.


mbl.is 700 milljónir á afskriftareikning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geirfuglastríðið mikla

Íslenskur listamaður gerði eftirmynd af geirfugli árið 1988 og setti það upp í Skerjafirðinum, þeim til augnayndis, sem eiga leið framhjá fuglsmyndinni, en aðrir hafa lítið haft af henni að segja síðan hún var sett upp.

Erlendur listamaður hefur nú tekið sig til og gert syrpu af eftirmyndum útdauðra fugla og er geirfugl þar á meðal, sem hann fékk leyfi til að setja upp á Reykjanesinu og mun hún eflaust verða þeim sem þar eiga leið um til augnayndis, eins og geirfuglsmyndin í Skerjafirðinum.  Íslenski listamaðurinn brást hins vegar ókvæða við þessari nýju geirfuglseftirmynd og taldi hana vera stælingu á sinni, enda báðar nauðalíkar hinum útdauða geirfugli, sem reyndar var tilgangurinn með báðum verkunum.  Þetta furðulega geirfuglastríð verkur upp þá spurningu, hvort einn listamaður geti haft einkaleyfi til að gera eftirmyndir af ákveðinni dýrategund, lifandi eða útdauðri, og enginn annar megi eftir það glíma við að búa til sína eigin eftirmynd af kvikindinu.

Nú eru t.d. styttur af hestum og fleiri dýrategundum, vítt og breitt um veröldina og verður að teljast stórmerkilegt að ekki skuli hafa brotist út stórstyrjaldir vegna slíkrar fjöldaframleiðslu á dýraeftirlíkingum og skýrist það ef til vill af því að þetta hefur tíðkast í árþúsundir og höfundarréttur fyrstu listamannanna sé því lögnu útrunninn.

Ef til vill átti aldrei að taka mark á þessari fáránlegu kvörtun íslenska listamannsins og uppákoman hafi eingöngu verið til gamans gerð í þeirri von að hún gæti komið fólki í gott skap og fengið það til að hlæja dátt.

Hafi það verið tilgangurinn, tókst ætlunarverkið fullkomlega.


mbl.is Neita að fjarlægja geirfuglinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskreppan sennilega ekki Sjálfstæðisflokknum að kenna

Vinstri menn á Íslandi hafa verið óþreytandi við þann spuna, að kreppan á Íslandi sé algerlega Sjálfstæðisflokknum að kenna og sé algerlega einangrað fyrirbæri og ótengd öllu sem gegnið hefur á í veröldinni í fjár- og bankamálum á undanförnum árum.  Það er gamalt ráð frá Herman Göring, eins nánasta samstarfsmanns Hitlers á valdatíma nasistanna, að sé lygi endurtekin nógu oft, endi með því að fólk fari að trúa henni og það ráð hafa vinstri menn á Íslandi nýtt sér dyggilega í þessu efni, sem og svo mörgum öðrum.

Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri AGS, hélt í dag ræðu yfir seðlabankastjórum alls staðar úr heiminum og hvatti til samstöðu þeirra í baráttunni við heimskreppuna, sem enginn þykist þó hafa heyrt af hér á landi og sagði m.a:  "Nú er hætt við því að samhljómurinn sem náðist við að ná tökum á fjármálakreppunni leysist upp í ærandi sundurleitan kór, þegar þjóðir heims reyna í auknum mæli að taka einar á málunum. Þessi þróun er vís til þess að leiða okkur öll í verri stöðu."

Hvergi í ræðunni mun Strauss-Kahn hafa minnst á sök Sjálfstæðisflokksins á heimskreppunni og ekki heldur nefnt á nafn nokkurn einasta íslenskan stjórnmálamann, sem hann vildi kenna um að hafa komið öllu í kalda kol í efnahagsmálum heimsins og ekki mun hann heldur hafa talið að hún hafi yfirleitt átt upptök sín á Íslandi.

Íslenskir vinstri menn munu alveg örugglega halda sig við ráð Görings eftir sem áður.


mbl.is Efnahagsbati heimsins „í hættu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Asnaeyrnatog

Þegar náttúruhamfarir dynja á landinu, svo sem eldgos eða jarðskjálftar fer allt björgunarkerfi þjóðarinnar af stað til að bjarga og aðstoða þá sem fyrir hamförunum verða, en ekki er hugsað um hina, sem enga hjálp þurfa, enda falla þeir að sjálfsögðu ekki í flokk þeirra sem neyðaraðstoð nær yfir.  Sama gildir um þá sem lenda í bifreiðaslysum, björgunarlið er sent á vettvang og jafnvel þó sá sem slysinu olli hafi verið í órétti fær hann neyðaraðstoð og flutning á sjúkrahús, þar sem honum er hjúkrað á sama hátt og hinum, sem fyrir slysinu varð og var í fullum rétti í umferðinni.

Annað virðist vera uppi á teningnum ef fólk lendir í fjárhagslegum slysum, hvort sem þau eru vegna sjálfskaparvítis eða annars, því t.d. Hagsmunasamtök heimilanna berjast harkalega fyrir því, að aðaláhersla verði lögð á að koma þeim til aðstoðar, sem hugsanlega gætu lent í ógöngum með sín skuldamál á næsta ári, eða því þarnæsta, en segjast hins vegar ekki vera að berjast fyrir því "að bjarga öllum", eins og þau orða það svo snyrtilega.

Hefði ekki þótt undarlegt þegar gosið varð í Eyjafjallajökli, ef þeir sem urðu þar fyrir skaða, hefðu verið látnir bíða, en áhersla lögð á að "bjarga" þeim sem hugsanlega gætu orðið fyrir tjóni ef Katla tæki upp á því að gjósa á næsta ári, eða því þarnæsta?  Slíkt hefði örugglega þótt fáránlegur hugsunarháttur, en þó í ætt við hugsun HH, sem ekki berst fyrir því að bjarga þeim, sem eru í raunverulegri neyð nú þegar. 

Hagsmunasamtök Heimilanna og ríkisstjórnin eru í einhverskonar asnaeyrnatogi fram og til baka, sem engan tilgang hefur og ekkert skilur eftir sig, annað en verk í eyrunum.

Á meðan að á asnaeyrnatoginu stendur bíða þeir sem fyrir skakkaföllum hafa orðið ennþá á slysstað og þrátt fyrir tveggja ára bið bólar ekkert á björgunarliðinu, hvort sem þeir sem um sárt eiga að binda voru í rétti eða órétti.


mbl.is Engar ákvarðanir enn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband