22.2.2009 | 09:09
Uppsagnir á Landspítala
Fyrrverandi heilbrigðisráðherra vildi fara þá leið að sameina sjúkrastofnanir og skera þar með niður í yfirstjórnum, þ.e. fækka forstjórum og öðrum stjórum, en vernda almenn störf á spítulunum. Þá fann Ögmundur Jónasson því allt til foráttu og taldi þær aðgerðir árás á heilbrigðiskerfið.
Fyrsta verk Ögmundar í ráðuneytinu var að afturkalla þessar aðgerðir og í staðinn þarf nú að grípa til uppsagna almennra heilbrigðisstarfsmanna. Það hljóta að hafa verið betri "fyrstu aðgerðir" að fækka í hópi smákónga í kerfinu, því það hefði gefið mun betri tón fyrir framhald þess niðurskurðar sem óhjákvæmilegur er á næstu árum í heilbrigðiskerfinu.
Smáskammtalækningar duga skammt, það verður að fara fram heildaruppstokkun á öllu skipulagi innan heilbrigðisgeirans og uppræta í eitt skipti fyrir öll það sjálftökukerfi smákónga, sem þar hefur byggst upp.
Það kemur vel á vondan að Ögmundur skuli þurfa að standa frammi fyrir þessu. Hann hefur aldrei mátt heyra minnst á nokkrar breytingar á þessu sviði.
![]() |
Uppsagnir fyrirhugaðar á Landspítala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.2.2009 | 08:50
Öskur(apa)byltingin
Það er aumkunarvert að sjá myndirnar af Öskurbyltingarsinnunum veifandi bjórdósum við varðeldinn á Lækjartorgi á Laugardagskvöldi. Nafnið á byltingarsamtökum stúdenta "Öskra" er afar lýsandi fyrir málstaðinn.
Sorglegt, hvernig komið er fyrir háskólasamfélaginu þegar svona skríll er farinn að skreyta fíflalætin með tilvísun til "menntunar" sinnar.
![]() |
Friðsælt á Lækjartorgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)