Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
Prófkjör
Þakka þér fyrir bloggið þitt. Ég hef áhyggjur af því að konur skuli ekki vera virkari í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.
Rafn Gunnarsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 5. nóv. 2012
Frá Rafni Gunnarssyni
Þakka þér fyrir bloggið þitt. Mér líst ekki á að konur skuli ekki vera virkari í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Í prófkjörinu hefði ég skráð karl og konu til skiptis, svonefnt fléttulistafyrirkomulag.
Rafn Gunnarsson (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 5. nóv. 2012
Frá Bjartmari Guðlaugssyni
Sæll Axel Sé mig tilneyddan að senda þér nokkrar línur en borið hefur á að einhver mannskratti er nota nafn mitt í álitsgjöf á blogginu og lenti hann meðal annars í orðræðum við þig í mars sl. undir mínu nafni. Ég hef aldrei komið nálægt bloggheimum af neinu tagi nema til að lesa og mundi síst af öllu nota eigin hugverk til að vitna í. Hvað þá að drulla yfir annað fólk. Ég þarf að fá hjálp við að komast að því hver þessi einstaklingur er, mér er gjörsamlega nóg boðið. Kær kveðja Bjartmar Guðlaugsson sími: 6962622
Bjartmar Guðlaugsson (Óskráður, IP-tala skráð), fös. 28. maí 2010
Ritskoðun.
Hér þolir síðueigandi ekki að menn séu mikið ósammála honum, enda stundar hann miklar ritskoðanir sem sönnum sjalla sæmir. Allt fyrir málfrelsið.
Hamarinn, mán. 19. apr. 2010
Verðlaun
Úr bunkanum fyrir 100 þús. flettinguna dróst nafn þitt, kær Axel. Þú færð senda bók mína, Karlmennska og jafnréttisuppeldi, við fyrsta tækifæri - ef þú sendir mér heimilisfangið þitt í tölvupósti: ingo@ismennt.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, fös. 11. sept. 2009