24.9.2009 | 16:55
Hraðaspurnigar á ensku
Nú er svo komið að opinbert tungumál ráðuneytanna og stjórnsýslunnar er enska, því það er orðið svo dýrt að tala íslensku. Undirlægjuhátturinn við ESB er svo ótakmarkaður, að borið er við að það myndi kosta of mikið að þýða spurningalista ESB og þar að auki tæki það tvo til þrjá mánuði.
Allt skal gert til að hraða samningaferlinu við ESB, án þess að nokkur skilji hvað liggur á í þessu efni. Ríkisstjórnin kemur ekki frá sér nokkru einasta verki, enda eru starfsmenn allra ráðuneyta og annarra stofnana í vinnu langt fram á kvöld og um helgar í spurningaleiknum. Þar er ekkert til sparað í launakostnaði, þó öllum öðrum ríkisstofnunum sé uppálagt að skera niðu aukavinnu, stytta vaktir og afnema ósamningsbundnar kostnaðargreiðslur.
Áætlaður kostnaður við umsóknarferlið að ESB er um tveir milljarðar króna og því er hlægilegt að bera því við, að of dýrt sé að nota móðurmálið við þá vinnu, þó það myndi kosta tíu milljónir.
Samfylkingin er yfirlýstur undirlægjuflokkur ESB sinna, en óskiljanlegt er að VG skuli taka þátt í þessari spurningakeppni.
ESB setur fram eintómar hraðaspurningar og álitamál hvort stjórnsýslan geti hugsað nógu hratt.
Spurningalisti ESB ekki þýddur á íslensku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Höfundur
Áhugamaður um lífið og tilveruna.
Athugasemdir og umræður eru öllum opnar á síðunni, en þess vænst að þær séu hófstilltar og án mikilla stóryrða.
Ruddalegar athugasemdir, sem innihalda lítið sem ekkert annað en skítkast og/eða persónulegar svívirðingar um menn og málefni verða fjarlægðar af þessari síðu, jafnóðum og þær uppgötvast.
Eldri færslur
2021
2020
2019
2018
2017
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
Færsluflokkar
Tenglar
Mínir tenglar
Bloggvinir
- malacai
- andres
- annabjorghjartardottir
- attilla
- skagstrendingur
- baldvinj
- benediktae
- beggo3
- h2o
- bbg
- bjarnimax
- bookiceland
- siggibragi
- brandarar
- deiglan
- gagnrynandi
- doggpals
- ekg
- elfur
- eeelle
- ellamagg
- elismar
- evaice
- ea
- fannarh
- lillo
- vidhorf
- gerdurpalma112
- gunnargunn
- tilveran-i-esb
- gthg
- gun
- gudbjorng
- zumann
- gudjul
- gp
- hreinn23
- brekkukotsannall
- gustaf
- hallarut
- morgunblogg
- hannesgi
- miniar
- maeglika
- heimssyn
- aanana
- hildurhelgas
- himmalingur
- minos
- atvinnulaus
- daliaa
- ingvarvalgeirs
- jakobk
- fun
- jennystefania
- jonsullenberger
- dondi
- jonsnae
- jonvalurjensson
- jonarni
- jonoskarss
- jorunnfrimannsdottir
- kaffistofuumraedan
- krist
- kristinn-karl
- krissiblo
- kristjan9
- altice
- sleggjudomarinn
- elvira
- mathieu
- morgunbladid
- ninasaem
- pallru
- pallvil
- palmij
- iceland
- ragnar73
- rannsoknarskyrslan
- redlion
- seinars
- fullvalda
- logos
- sigrunzanz
- sigurduringi
- sigurdurkari
- siggisig
- sisi
- siggifrikk
- stebbifr
- stjornuskodun
- stormsker
- saevargudbjornsson
- athena
- susannasvava
- tibsen
- ubk
- vala
- val
- vestarr
- postdoc
- gummih
- asdisran
- thjodarsalin
- mullis
- sumri
- t24
- omarragnarsson
- umbiroy
- thjodarheidur
- thorhallurheimisson
- flinston
- diva73
- thjodarskutan
- lifsrettur
- samstada-thjodar
- fullveldi
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég býðst til að taka verkið að mér fyrir 20% af kostnaðaráætlun.
Guðmundur Ásgeirsson, 24.9.2009 kl. 17:13
svör Íslands muni eingöngu innihalda lýsingu á staðreyndum, löggjöf, innleiðingu löggjafar og framkvæmd hennar auk skipulags einstakra málaflokka.
Er þessi íslenska of torskilin fyrir þig, eða hvað á þessi kjánalega færsla að fyrirstilla?
Íslenska er ekki eitt af opinberum tungumálum spyrjandans. Næg tungumálaþekking er til staðar innan íslensku stjórnsýslunnar til þess að svara hinum erlenda aðila á erlendu tungumáli.
Kristján Birgisson (IP-tala skráð) 24.9.2009 kl. 19:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.